„Leika saman,“ Barnavinur, september 2025, 44–45.
Þægilegur lestur
Leika saman
Sönn saga frá Bandaríkjunum.
Diego var einmana. Fjölskylda hans hafði flutt á nýjan stað. Hann saknaði vina sinna frá gamla heimilinu.
Diego lék nú við litlu systur sína, Köru. Hann vildi þó líka eignast nýjan vin.
Fljótlega flutti fjölskylda inn í næsta hús. Þau áttu lítinn dreng, alveg eins og hann! Hann hét Sam.
Diego og Sam léku sér saman á hverjum degi.
Dag einn, þegar þeir voru að spila, sá Diego að Kara var leið. Kannski var hún líka einmana.
„Viltu leika með okkur?“ spurði Diego.
Kara brosti breitt. „Leika!“
Diego, Sam og Kara léku saman með lestir. Þau ýttu leikfangalestarvögnunum fram og til baka. „Tjú-tjú!“ Diego brosti. Hann skemmti sér vel og Kara líka!
Myndskreyting: Natalie Briscoe