„Ráðstefnuverkefni,“ Barnavinur, september 2025, 6–7.
Ráðstefnuverkefni
Fyrir tilstuðlan gervihnattatækni getur fólk hlustað á ráðstefnuna um heim allan. Vinnið þessi verkefni meðan þið hlustið!
Litað eftir táknum
Þegar nýr ræðumaður hefur ræðu sína, veljið þá tákn á listanum fyrir neðan. Notið svo þann lit til að fylla í formin á meðan þið hlustið.
Hlustunarvölundarhús
Fylgið þessu völundarhúsi með fingrum ykkar til að hjálpa ykkur að hlusta hljóðlega á aðalráðstefnu. Notið síðan aðskilið blað til að reyna að teikna ykkar eigið!
Ráðstefnuspurningar
Lesið sögu Lou á bls. 4. Hvaða trúarspurningar hafið þið? Skrifið þær í reitina hér að neðan til að muna, á meðan þið hlustið á ráðstefnu. Gætið þess að biðjast líka fyrir um svör.
Fleiri hugmyndir
-
Prentið út eða klippið út myndir úr Líahóna af Æðsta forsætisráðinu, postulunum og öðrum leiðtogum. Þegar nýr ræðumaður stendur upp til að flytja ræðu sína, finnið þá mynd af honum.
-
Veljið orð sem fjölskylda, til að hlusta eftir (eins og ást eða musteri). Skrifið orðið á blað. Hvenær sem þið heyrið orðið á ráðstefnu, teiknið þá stjörnu eða setjið límmiða á blaðið.
-
Hefjið fjölskylduráðstefnuhefð! Búið til eitthvað sérstakt góðgæti eða gerið eitthvað annað til að gera helgina alveg sérstaka.
Myndskreyting: Samantha Windley