„Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, september 2025, 22–23.
Kom, fylg mér – Verkefni
1.–7. september: Kenning og sáttmálar 94–97
Byggja musteri
Musterið er staður þar sem Guð getur blessað okkur (sjá Kenning og sáttmálar 95:8). Byggið ykkar eigið musteri með sykurmolum, kubbum eða hlutum úr náttúrunni! Sendið okkur síðan mynd af sköpun ykkar! Flettið að aftanverðri kápusíðu til að sjá hvernig.
8.–14. september: Kenning og sáttmálar 98–101
Halda ró
Ritningarnar kenna: „Hald ró yðar og vitið að ég er Guð“ (Kenning og sáttmálar 101:16). Það þýðir að þegar við gefum okkur tíma til að vera lotningarfull, getum við skynjað nálægð himnesks föður. Leikið þennan leik um að vera kyrr. Einn hleypur og reynir að klukka alla aðra. Þegar einhver er klukkaður stendur hann grafkyrr. Áður en þau geta hlaupið aftur, segja þau eitthvað sem þau vita um himneskan föður.
15.–21. september: Kenning og sáttmálar 102–105
Kertaföndur
Við getum verið öðrum ljós með því að fylgja fordæmi Jesú Krists og þjóna öðrum (sjá Kenning og sáttmálar 103:9). Farið á bls. 13 til að búa til ykkar eigið kertaföndur!
22.–28. september: Kenning og sáttmálar 106–108
Ráðstefnuverkefni
Það er mikilvægt að hlusta á spámann Guðs og postula (sjá Kenning og sáttmálar 107:22–23). Lesið frásögn á bls. 4 um að fá svör frá aðalráðstefnu. Skrifið ykkar eigin spurningar á bls. 6. Þið munið einnig finna verkefni sem þið getið unnið á meðan þið hlustið á ráðstefnuna.
Ljósmyndir: Christina Smith