„Auðveld osta- og baunaídýfa,“ Barnavinur, september 2025, 32.
Við skulum matreiða
Auðveld osta- og baunaídýfa
-
1 dós (450 g) tvísteiktar baunir
-
2 lárperur
-
1/4 bolli (65g) salsa
-
1 bolli (225g) sýrður rjómi
-
2 bollar (240g) rifinn ostur
-
Valfrjálst álegg: tómatar í sneiðum, vorlaukur eða svartar ólífur
-
Tortilluflögur
Ef þið eruð ekki með eitthvað af þessum innihaldsefnum getið þið notað hráefni þaðan sem þið búið! Ef þið eruð ekki með tvísteiktar baunir getið þið maukað svartar baunir með smá hvítlaukssalti.
-
Dreifið tvísteiktum baunum í jafnt lag í 20 cm ferningspönnu eða eitthvað álíka.
-
Í miðlungsstórri skál, skulið þið mauka lárperuna með helmingnum af salsanu. Dreifið því nú ofan á baunirnar.
-
Blandið sýrðum rjóma og restinni af salsanu saman. Dreifið því ofan á lárperuna.
-
Stráið osti yfir og bætið við valfrjálsu áleggi.
-
Berið fram með tortilluflögum og njótið!