„Velkomnir, vinir!“ Barnavinur, september 2025, 1.
Velkomnir, vinir!
Aðalráðstefna er í næsta mánuði! Það þýðir að við fáum að hlýða á boðskap spámanns okkar og annarra leiðtoga. Þeir munu kenna okkur það sem Guð vill að við lærum. Við getum fundið heilagan anda tala til okkar þegar við hlustum. Lesið söguna á bls. 4 til að komast að svarinu sem Lou fékk þegar hún hlustaði á ráðstefnuna.
Er fjölskylda ykkar með einhverjar hefðir fyrir aðalráðstefnu? Þið gætuð ef til vill sett upp tjald til að hlusta á, eins og Margo og Paolo gera (sjá bls. 33). Þið getið notað verkefnin á bls. 6–7 og á netinu meðan þið hlustið.
Njótið þess að hlusta!
Kveðja,
Barnavinur