2025
Fimm brauð og tveir fiskar
September 2025


„Fimm brauð og tveir fiskar,“ Barnavinur, september 2025, 2–3.

Frá forsætisráði Barnafélagsins

Fimm brauð og tveir fiskar

Úr viðtali við Lucy Stevenson Ewell.

Jesús Kristur heldur á körfum með brauði og fiski með margt fólk að baki sér

Ein eftirlætissagan mín er í Nýja testamentinu. Yfir fimm þúsund manns hlýddu á frelsarann kenna allan daginn. Þau fóru að verða svöng.

Einn lærisveinanna sagði: „Hér er piltur, sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska en hvað er það handa svo mörgum?“ (Jóhannes 6:9).

Jesús bað þá að færa sér matinn og hann fór með bæn. Síðan gerðist kraftaverk. Það var nóg til að fæða alla. Það voru líka 12 körfur með brauði í afgang!

Ég vil að þið munið hver kom með brauðin og fiskana. Það var ungur drengur! Hann gaf frelsaranum allt sem hann átti.

Börn eru himneskum föður svo mikilvæg. Þegar þið fylgið Jesú Kristi með því að þjóna öðrum, mun hann blessa ykkur.

Þið getið líka gefið!

Teiknið mynd af því hvernig þið getið þjónað öðrum.

PDF-síða