2025
Spjall við Gabby um þjónustu í kirkju
September 2025


„Spjall við Gabby um þjónustu í kirkju,“ Barnavinur, september 2025, 40–41.

Spjall við Gabby um þjónustu í kirkju

Gabby er 11 ára stúlka frá Harare, Simbabve. Við spurðum hana nokkurra spurninga um stjórn tónlistarinnar í kirkju.

Brosandi telpa

Segðu okkur frá sjálfum þér.

Ég elska að elda eftirrétti og bragðmikla rétti og spila á marimbu. Ég syng og dansa og er að læra að spila á flautu, sílófón og píanó.

Segðu okkur frá nýja verkefninu þínu.

Biskupinn bað mig að aðstoða við að stjórna tónlistinni á sakramentissamkomu. Ég átti ekki von á þessu og hélt að þeir myndu velja einhvern eldri. En ég fann líka fyrir elsku og gleði, því ég elska tónlist.

Stundum er ég enn hrædd um að ég muni syngja eitthvað vitlaust og að fólk heyri það. En heilagur andi lætur mér líða vel frammi fyrir öllum. Nú þegar ég er að venjast því, þá er það í raun frekar gaman!

Stúlka sem leiðir tónlistina á sakramentissamkomu

Hvernig var það að stjórna tónlistinni á sakramentissamkomu barna?

Í fyrstu var það ógnvekjandi. Þegar við vorum að æfa, gleymdi ég stundum sumum orðunum. Ég æfði því sönginn með mömmu heima við og það hjálpaði mikið. Þegar við æfðum í Barnafélaginu, söng ég hærra til að hjálpa þeim sem ekki geta lesið eða kunnu ekki textann.

Ég var spennt þegar sýningardagurinn rann upp. Allt gekk ljómandi vel. Ég fann fyrir friði og ró og orðin komu bara til mín.

Hvað lærðir þú af þessari upplifun?

Ég lærði að stundum ganga hlutirnir ekki fullkomlega, en það er í lagi og maður getur lært af því. Að stjórna tónlistinni í Barnafélaginu bjó mig líka undir nýja verkefnið mitt!

Brosandi stúlka stendur úti

Hvaða ráð myndirðu gefa öðrum varðandi þjónustu í kirkju?

Stundum getur verið erfitt að þjóna frammi fyrir mörgum, en málið með okkur krakkana er að við getum leitt, sama hve gömul við erum, eða hversu lágvaxin eða hávaxin við erum. Ég myndi segja þeim að þó að óttinn gæti stundum dregið okkur niður, þá getur heilagur andi hjálpað okkur að finna frið. Hann mun alltaf hjálpa okkur að rísa upp aftur.

PDF-síða