2025
5 atriði sem þarf að hafa í huga varðandi líkamsöryggi
September 2025


„5 atriði sem þarf að hafa í huga varðandi líkamsöryggi,“ Barnavinur, september 2025, 38–39.

5 atriði sem þarf að hafa í huga varðandi líkamsöryggi

Líkami ykkar er gjöf frá himneskum föður. Hann vill hjálpa ykkur að vera örugg og hamingjusöm. Ef einhver reynir að skaða ykkur með orðum eða gjörðum, er það ekki í lagi! Við ættum að sýna öðrum góðvild og virðingu og við ættum að vænta þess að þeir sýni okkur líka góðvild og virðingu.

  1. Það er í lagi að segja nei, jafnvel við fullorðna. Þið hafið umsjón yfir líkama ykkar. Það þýðir að þið ákveðið hvort einhver megi snerta ykkur, faðma ykkur eða kyssa. Þið getið æft ykkur í því að segja „nei“, „ekki snerta mig“ og „láttu mig í friði“. Ef verið er að snerta ykkur eða þið eruð beðin um að gera eitthvað sem ykkur finnst óþægilegt, þá er í lagi að segja nei og fara ef þið getið.

  2. Verið meðvituð um hvaða snerting er örugg eða óörugg. Örugg snerting hjálpar ykkur að finnast þið elskuð (eins og faðmlag eða fimma) eða halda ykkur hreinum og heilbrigðum (eins og foreldri sem hjálpar ykkur í bað eða læknir hjálpar ykkur þegar þið eruð veik). Stundum getur örugg snerting verið sár, eins og að fá sprautu, en hún er örugg vegna þess að hún heldur ykkur heilbrigðum. Óörugg snerting skaðar líkama ykkar eða tilfinningar, eins og að lemja, ýta eða snerta einkasvæði einhvers. Þessar sársaukafullu eða óþægilegu snertingar eru ekki í lagi.

  3. Það eru hlutar líkamans sem eru einkamál þar sem annar einstaklingur ætti ekki að snerta ykkur. Einkasvæði eru meðal annars þeir líkamshlutar sem fara undir sundföt. Það er ekki í lagi að aðrir snerti einkasvæði ykkar (annaðhvort undir eða yfir fötunum) eða biðji ykkur að snerta einkasvæði sín. Ef þetta kemur fyrir skulið þið tala við traustan fullorðinn einstakling eins fljótt og þið getið.

  4. Hafið í huga muninn á leyndarmálum og óvæntum uppákomum. Óvæntar uppákomur eru eitthvað glaðlegt sem er skemmtilegt fyrir alla, eins og afmælisgjöf. Leyndarmál er þegar einhver segir þér að segja engum frá. Ef þið eruð beðin að halda leyndarmáli um einhvern sem snerti ykkur eða meiddi, ættuð þið samstundis að segja einhverjum sem þið treystið. Haldið áfram að segja traustu fullorðnu fólki frá þar til einhver hjálpar ykkur að verða örugg.

  5. Ef einhver snertir ykkur eða meiðir er það ekki ykkur að kenna. Einhver sem hefur meitt ykkur getur reynt að telja ykkur eða öðrum trú um að þið hafið gert eitthvað rangt, en þið gerðuð það ekki. Himneskur faðir og Jesús Kristur þekkja og elska ykkur fullkomlega. Biðjið traustan fullorðinn einstakling um hjálp og munið að þið getið líka beðið til himnesks föður um hjálp.

PDF-síða

Myndskreyting: Mike Mullan