„Fyrir eldri börn,“ Barnavinur, september 2025, 34–35.
Fyrir eldri börn
Orð frá ykkur
Bekkjarbróðir sagði ljót orð í skólanum. Ég ræddi við pabba um þetta. Daginn eftir bað ég bekkjarbróður minn að hætta að segja ljótu orðin og hann gerði það.
Henry F., 9 ára, Texas, Bandaríkjunum
Móðir mín var kvíðin fyrir því að fara til læknis. Ég sagði henni að ég hefði farið með bæn kvöldið áður fyrir því að allt myndi fara vel. Hún fann fyrir heilögum anda. Þetta kenndi mér að himneskur faðir hlustar á bænir okkar.
Lucia P., 10 ára, Capital District, Venesúela
Kirtland-musterið
Guð bað Joseph Smith og hina fyrri tíma heilögu að reisa musteri í Kirtland, Ohio, Bandaríkjunum. Tengið punktana til að byggja musterið.
Leikföng brautryðjenda
Hér eru nokkur leikföng frá brautryðjendatímanum. Geturðu tengt myndina við nafnið?
-
Skopparakringla
-
Snarkringla
-
Klifurbjörn
-
Trésnúður með skrúfu
Teikniáskorun
Reynið að teikna uppáhaldsdýr ykkar með augun lokuð!
Myndskreyting: Lisa Hunt