„Tónlistarvitnisburður minn,“ Barnavinur, september 2025, 19.
Skrifað af ykkur
Tónlistarvitnisburður minn
Í mínu landi eru flestir kaþólskir. Ég geng í kaþólskan skóla.
Þegar ég var í öðrum bekk lék kennarinn minn tónlist meðan við unnum að verkefnum dagsins. Dag einn spurði hún hvort einhver vildi velja lag til að hlusta á. Ég var að verða átta ára það ár og bjó mig undir skírn mína. Textinn „Ég regnboganum fagna“ kom upp í huga minn. Ég bað kennarann minn að spila lagið „Þegar ég skírist“ frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Kennarinn minn samþykkti þetta og fletti því upp.
Brátt hljómaði lagið svo allir í kennslustofunni gátu hlustað á. Í fyrstu horfðu sumir bekkjarfélagar mínir einkennilega á mig, en síðar fann ég fyrir heilögum anda í hjarta mínu. Það fyllti mig friði.
Þegar skólinn var búinn þann daginn var ég mjög ánægð yfir að hafa miðlað bekkjarfélögum mínum fagnaðarerindinu í gegnum uppáhalds Barnafélagssönginn minn. Ég held að þetta hafi verið góð leið til að búa mig undir að bjóða vinum mínum í skírnina mína.
Myndskreyting: Simini Blocker