„Uppbygging Nauvoo,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)
„Uppbygging Nauvoo,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum
1840–1842
Uppbygging Nauvoo
Áætlanir Drottins um fallega borg
Drottinn bauð hinum heilögu að safnast saman á nýjum stað. Það var nálægt stórri á sem nefndist Mississippi. Landið var blautt og forugt. Sumum fannst þetta ekki góður staður til að byggja borg. Spámaðurinn Joseph Smith vissi þó að með hjálp Drottins gætu þau gert hana fallega.
Kenning og sáttmálar 124:25; Heilagir, 1:417
Hinir heilögu tóku að vinna hörðum höndum að því að gera þetta að góðum stað til að búa á. Spámaðurinn Joseph nefndi bæinn Nauvoo, sem þýðir „fallegur staður“.
Heilagir, 1:417
Drottinn bauð hinum heilögu að byggja hús í Nauvoo, þar sem ferðalangar gætu hvílt sig. Hann vildi að Nauvoo yrði staður þar sem öllum fyndist þeir velkomnir.
Kenning og sáttmálar 124:22–24, 60; Heilagir, 1:426
Drottinn sagði spámanninum Joseph að hann hefði miklar áætlanir fyrir Nauvoo. Hann vildi að hans heilögu söfnuðust hér saman svo þeir gætu byggt musteri. Hann bað þá að vinna eins mikið og þeir gætu til að byggja hús hans. Hinir heilögu tóku brátt til starfa.
Kenning og sáttmálar 124:25–28, 44, 55; Heilagir, 1:420–21, 425–27
Drottinn vildi að hinir heilögu byggðu musteri, því hann hafði miklar blessanir að veita þeim. Í musterinu gerðu þeir sáttmála við Drottin eða gáfu honum sérstök loforð. Þeir myndu líka læra um sæluáætlun himnesks föður fyrir öll börn hans.
Kenning og sáttmálar 124:29–41; Heilagir, 1:453–55
Hinir heilögu lögðu hart að sér við að byggja musterið, alveg eins og Drottinn hafði boðið. Það tók langan tíma, en þeir hlökkuðu til þess dags þegar þeir gætu hver fyrir sig lært um hin sérstöku loforð Drottins fyrir þá í musteri hans.
Heilagir, 1:453–55