Sögur úr ritningunum
Trúboð Parleys til Kanada


„Trúboð Parleys til Kanada,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Trúboð Parleys til Kanada,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Apríl–júní 1836

Trúboð Parleys til Kanada

Trú sýnd á loforð Drottins

Kirkjuleiðtogar á gangi nærri Kirtland-musterinu.

Skömmu eftir vígslu Kirtland-musterisins, fóru margir leiðtogar kirkjunnar í trúboð til að boða fagnaðarerindið.

Kenning og sáttmálar 88:81; 109:22–23; 112:28–29; Heilagir, 1:249

Parley Pratt situr við rúm eiginkonu sinnar.

Parley Pratt hafði unun af því að miðla fagnaðarerindinu. Honum fannst samt að hann ætti að vera heima, því eiginkona hans, Thankful að nafni, var veik. Þau áttu heldur ekki mikla peninga.

Heilagir, 1:249

Heber Kimball blessar Parley og Thankful.

Heber Kimball, vinur Parleys og einn af postulunum, kom í heimsókn. Hann veitti Parley blessun og sagði að hann ætti að boða fagnaðarerindið í Kanada. Í blessuninni lofaði Heber því að Thankful myndi batna. Hann lofaði að hún myndi eignast son og Drottinn myndi hjálpa Parley með peningana sem hann þyrfti.

Heilagir, 1:249–50

Parley kveður Thankful.

Thankful og Parley höfðu verið gift í tíu ár. Þau áttu engin börn. Þau trúðu þó á loforð Drottins. Þótt erfitt væri að vera svo fjarri Thankful í Kanada, fór Parley til að miðla fagnaðarerindinu.

Heilagir, 1:250

Parley í trúboði sínu í Kanada.

Í Kanada leitaði Parley að stöðum þar sem hann gæti kennt fólki. Hann spurði hvort hann gæti kennt í kirkjunum og öðrum byggingum. Allir neituðu því.

Heilagir, 1:252–53

Parley hittir John og Leonoru Taylor.

Þá hitti Parley John og Leonoru Taylor. Þau elskuðu Jesú Krist og Biblíuna. John spurði Parley hvort það sem hann kenndi væri frábrugðið Biblíunni.

Heilagir, 1:252–53

Parley og John ræða saman.

Parley sagðist hafa kennt um Jesú, spámenn, skírn og heilagan anda. Allt þetta væri í Biblíunni. John spurði: „Hvað með Joseph Smith og Mormónsbók?“ Parley sagði John að hann vissi að Mormónsbók væri sönn, alveg eins og Biblían, og að Joseph Smith væri spámaður Guðs.

Heilagir, 1:253

Parley kennir hópi heilagra.

John trúði því sem Parley sagði. Hann las Mormónsbók og vissi að hún var sönn. John og Leonora buðu vinum sínum, Joseph, Mercy og Mary Fielding og fleirum, að koma og hlýða á kennslu Parleys. Margir létu skírast og gengu í kirkjuna.

Heilagir, 1:254–55

Parley kveður vini sína í Kanada.

Parley var ánægður, en hann vildi fara heim til Thankful í Kirtland. Hann kvaddi nýju vinina sína í Kanada. Þegar hann kvaddi þau með handabandi, létu þau hann fá peninga til að hjálpa honum að sjá fyrir fjölskyldu sinni.

Heilagir, 1:255–56

Parley og Thankful saman í Kanada.

Þegar Parley kom heim, komst hann að því að Thankful leið mikið betur. Parley náði í fleiri eintök af Mormónsbók og fór aftur til Kanada til að halda áfram að miðla fagnaðarerindinu. Í þetta sinn fór Thankful með honum.

Heilagir, 1:256

Parley og Thankful Pratt faðmast.

Fljótlega komust Thankful og Parley að því að þau myndu eignast barn. Þau mundu eftir blessuninni sem Heber hafði veitt Parley. Þeim fannst sem allt sem Drottinn hafði lofað í þeirri blessun væri að uppfyllast.

Heilagir, 1:256