Sögur úr ritningunum
Hawns Mill


„Hawns Mill,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Hawns Mill,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Október 1838–febrúar 1839

Hawns Mill

Árás og kraftaverk

Willard Smith og fjölskylda hans í Hawns Mill.

Willard Smith var 11 ára gamall. Fjölskylda hans bjó í Hawns Mill, Missouri, með öðrum heilögum. Þau vildu brátt sameinast hinum heilögu í Far West.

Kenning og sáttmálar 115:7–8; Heilagir, 1:347–48

Fólk kemur til að ráðast á hina heilögu í Hawns Mill.

Dag einn var Willard með föður sínum og bræðrum, Sardius og Alma. Skyndilega heyrðu þeir skothvelli og öskur. Menn höfðu komið til að ráðast á hina heilögu.

Heilagir, 1:348–49

Heilagir fela sig fyrir árásarmönnum í Hawns Mill.

Allir hlupu til að finna skjól. Margir menn og börn földu sig í járnsmíðabúðinni. Faðir og bræður Willards fóru líka inn í hana, en Willard varð viðskila við þá. Hann faldi sig á bak við viðarstafla. Hann heyrði skothvelli allt í kringum sig.

Heilagir, 1:349, 353

Willard hleypur.

Willard hljóp frá stað til staðar til að fela sig. Loks hættu byssuskotin. Árásarmennirnir höfðu yfirgefið Hawns Mill.

Heilagir, 1:353

Willard í járnsmíðabúðinni.

Willard fór í járnsmíðabúðina til að finna fjölskyldu sína. Faðir hans og Sardius höfðu verið drepnir. Alma, litli bróðir Willards, var þó enn á lífi.

Heilagir, 1:353

Willard heldur á bróður sínum, Alma.

Alma hafði verið skotinn í mjöðmina. Hann var illa særður. Willard tók Alma og bar hann í tjald fjölskyldunnar.

Heilagir, 1:353–54

Amanda Smith biður fyrir syni sínum, Alma.

Móðir Willards, Amanda, vissi ekki hvernig hún ætti að hjálpa með mjöðm Alma. Hún vissi þó að Guð gerði það. Hún baðst fyrir og heyrði rödd segja sér nákvæmlega hvað hún ætti að gera.

Heilagir, 1:354

Amanda hugar að sári Alma.

Amanda þvoði sár Alma með ösku. Síðan mölvaði hún trjárót og setti á sárið hans. Hún vafði mjöðm hans með klút. „Liggðu svona og hreyfðu þig ekki,“ sagði hún, „og Drottinn mun búa þér aðra mjöðm.“

Heilagir, 1:354–55

Amanda biðst fyrir um hjálp.

Síðar sagði ríkisstjóri Missouri að hinir heilögu yrðu að yfirgefa fylkið, ella yrðu þeir drepnir. En mjöðm Alma var ekki orðin betri. Amanda baðst fyrir og bað Drottinn um hjálp. Rödd sagði henni að Jesús myndi aldrei yfirgefa fjölskyldu hennar. Amöndu fannst eins og ekkert gæti skaðað hana.

Kenning og sáttmálar 88:83; Heilagir, 1:372, 378–79

Alma gengur um eftir að mjöðm hans hefur gróið.

Stuttu eftir að Amanda flutti bæn, heyrði hún öskur barna sinna. Hún hljóp til þeirra og þegar hún gerði það sá hún Alma hlaupandi um. „Það er allt í lagi með mig, mamma, það er allt í lagi með mig!“ sagði hann. Mjöðm hans var heil! Þetta var kraftaverk frá Drottni. Amanda og börnin hennar yfirgáfu Missouri til að finna öruggan stað með hinum heilögu.

Heilagir, 1:379