„Telii þjónar Drottni,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)
„Telii þjónar Drottni,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum
Apríl 1844–mars 1852
Telii þjónar Drottni
Uppbygging kirkjunnar í Tubuai
Kona að nafni Telii bjó á lítilli eyju sem heitir Tubuai. Trúboðar frá hinum ýmsu kirkjum heimsóttu stundum Tubuai, en þeir dvöldu yfirleitt ekki mjög lengi. Dag einn, árið 1844, varð Telii spennt yfir að heyra að trúboðar frá Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu væru komnir til Tubuai.
Kenning og sáttmálar 1:1; 133:8
Trúboðarnir voru á leið til stærri eyja. Fólkið í Tubuai vildi þó að þeir yrðu áfram og kenndu fagnaðarerindið. Telii og Nabota eiginmaður hennar sögðu að trúboðarnir gætu verið áfram heima hjá sér. Annar trúboðanna, Addison Pratt, samþykkti þetta.
Heilagir, 1:573–74
Telii og Nabota deildu öllu sem þau áttu með Addison. Þau kenndu honum að tala tungumál sitt. Addison kenndi þeim um Jesú Krist.
Heilagur andi sagði Telii og Nabota að fagnaðarerindi frelsarans væri sannleikur. Þau voru fyrsta fólkið í Tubuai sem skírðist.
Heilagir, 1:573–74
Telii, Nabota og Addison urðu miklir vinir. Þau ferðuðust saman og kenndu fagnaðarerindið í Tubuai og á öðrum eyjum. Þegar fólk reyndi að segja hinum heilögu í Tubuai að þeir hefðu ekki átt að ganga í kirkjuna, kenndi Telii þeim úr ritningunum að kirkjan væri sönn.
Heilagir, 2:27, 45
Telii langaði að hjálpa fleirum í Tubuai að læra fagnaðarerindi Jesú Krists. Hún útsetti tónlist við ritningarvers og bauð stórum hópum að syngja með sér á kvöldin. Að syngja söngva Telii hjálpaði mörgum að læra í ritningunum og muna eftir því sem þau lærðu.
Mörgum árum síðar, komu fleiri trúboðar til Tubuai, þar á meðal fjölskylda Addison. Telii bauð þau velkomin heim til sín. Hún vann að því með Louisu, eiginkonu Addison, að þjóna konunum í Tubuai.
Heilagir, 2:133–34
Eftir nokkurn tíma, neyddust trúboðarnir til að yfirgefa Tubuai og aðrar eyjar. En Telii hélt áfram að kenna og leiða hina heilögu. Kirkjan í Tubuai var sterk, sökum fordæmis og þjónustu Telii.
Heilagir, 2:150–51