„Susa Young Gates og Joseph F. Smith,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)
„Susa Young Gates og Joseph F. Smith,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum
1902–1918
Susa Young Gates og Joseph F. Smith
Opinberun um andaheiminn
Susa Young Gates var dóttir Brighams Young. Hún fæddist í Utah og ólst þar upp. Hún naut þess að skrifa og þjóna í kirkju Drottins.
Heilagir, 3:9–10, 64
Þegar Susa var orðin fullorðin varð hún mjög veik. Hún bað um prestdæmisblessun. Í blessuninni sagði Drottinn Susu að hann vildi að hún gerði musterisverk.
Heilagir, 3:193–94
Eftir blessunina náði Susa sér. Hún varði tíma sínum í að læra um ættarsögu sína. Þegar hún fann skyldmenni sem höfðu dáið án þess að hafa skírst, fór hún í musterið til að láta skírast fyrir þau. Hún naut þess að segja fólki frá ættarsögustarfi. Því miður voru margir áhugalausir.
Heilagir, 3:194–95, 206
Dag einn heimsótti Susa vin sinn, Joseph F. Smith, forseta kirkjunnar. Smith forseti hafði verið veikur í margar vikur. Susa vissi að hann var líka mjög sorgmæddur, því sonur hans hafði dáið. Hann var líka sorgmæddur yfir öðru sem gerðist í heiminum, eins og stríðum og sjúkdómum.
Heilagir, 3:197–99, 205–6
Þegar Susa settist með Smith forseta, var hann spenntur að tala við hana. Hann sagði Susu að Guð hefði veitt honum sérstaka sýn. Hún snerist bara um andaheiminn, þangað sem fólk fer eftir að það deyr. Sýn hans var rituð á blað. Smith forseti fékk Susu blaðið og bað hana að lesa textann.
Heilagir, 3:206–7
Susa las textann á blaðinu. Þar var sagt að Jesús Kristur hefði heimsótt andaheiminn. Hann sendi Adam, Evu og aðra trúfasta karla og konur til að kenna öndunum sem ekki meðtóku fagnaðarerindið meðan þau lifðu. Þau voru að hjálpa þessum öndum við undirbúning, svo fólk gæti skírst fyrir þá í musterinu.
Kenning og sáttmálar 138:11–19, 29–48; Heilagir, 3:206–7
Susa var undrandi þegar hún las sýn Smiths forseta. Smith forseti brosti til hennar. „Susa,“ sagði hann, „þú ert að vinna mikið verk.“ Hann sagðist elska hana fyrir trú hennar á Drottin.
Heilagir, 3:206
Susa skrifaði um opinberunina í dagbók sína. „Ó, það var hughreysting fyrir mig!“ sagði hún. Hún hlakkaði til þess að segja vinum sínum og öðrum meðlimum kirkjunnar frá því. Henni varð ljóst að sýn Smiths forseta myndi vekja áhuga hinna heilögu á því að vinna musterisverk fyrir fólk í andaheiminum.
Heilagir, 3:207