Sögur úr ritningunum
Kirkja Jesú Krists er stofnuð


„Kirkja Jesú Krists er stofnuð,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Kirkja Jesú Krists er stofnuð,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Apríl 1830

Kirkja Jesú Krists er stofnuð

Gleðileg kirkjusamkoma

Joseph Smith býður fólk velkomið á Whitmer-heimilið á fyrstu samkomu kirkjunnar.

Búið var að prenta Mormónsbók og prestdæmiskraftur Guðs var aftur kominn á jörðu. Drottinn sagði Joseph Smith að tími væri kominn til að stofna kirkju Jesú Krists.

Heilagir, 1:84

Fólk réttir upp hönd til að styðja Joseph og Oliver sem leiðtoga kirkjunnar.

Hinn 6. apríl 1830 komu um 40 konur og karlar á heimili Whitmer-fjölskyldunnar til að stofna kirkjuna. Drottinn hafði kallað Joseph og Oliver til að leiða kirkju sína. Joseph og Oliver báðu fólkið að rétta upp hönd til að sýna að það styddi þá sem leiðtoga sína.

Kenning og sáttmálar 20:1–3; Heilagir, 1:84

Nýir meðlimir kirkjunnar meðtóku sakramentið af gleði.

Þessu næst blessuðu Joseph og Oliver sakramentið. Þeir gáfu fólki það til að hjálpa því að minnast Jesú Krists. Joseph og Oliver lögðu síðan hendur sínar á höfuð fólksins sem hafði verið skírt. Þeir staðfestu þau sem meðlimi kirkjunnar og veittu þeim gjöf heilags anda.

Kenning og sáttmálar 20:75–79; Heilagir, 1:85

Joseph kennir nýjum meðlimum kirkjunnar.

Drottinn færði Joseph boðskap fyrir hina nýju kirkju. Hann sagði þeim að skrifa niður það sem gerðist í kirkjunni. Hann sagði þeim að Joseph Smith væri spámaður hans. Hann lofaði meðlimum kirkjunnar, að ef þeir fylgdu boðorðunum sem hann gæfi Joseph, myndi hann blessa þá. Djöfullinn myndi ekki hafa vald yfir þeim.

Kenning og sáttmálar 21:1–6; Heilagir, 1:85

Joseph Smith og faðir hans faðmast.

Fólkið var svo ánægt að hafa kirkju Jesú Krists! Eftir samkomuna skírðust fleiri, þar á meðal móðir og faðir Josephs. Þegar faðir hans kom upp úr vatninu, faðmaði Joseph hann þétt að sér. „Ég hef lifað það að sjá föður minn skírast inn í hina sönnu kirkju Jesú Krists!“ sagði hann.

Heilagir, 1:86

Joseph var afar þakklátur fyrir að hjálpa við endurreisn kirkjunnar.

Síðar um kvöldið fór Joseph út í skóg til að vera einsamall. Hjarta hans var fullt af gleði. Það voru liðin 10 ár síðan hann sá fyrst himneskan föður og Jesú Krist. Svo margt hafði gerst frá þeim tíma. Joseph var mjög þakklátur fyrir að geta hjálpað til við að endurreisa kirkju Jesú Krists!

Heilagir, 1:86