Sögur úr ritningunum
Trúboð til frumbyggja Ameríku


„Trúboð til frumbyggja Ameríku,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Trúboð til frumbyggja Ameríku,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Október 1830 – janúar 1831

Trúboð til frumbyggja Ameríku

Indjánarnir í Delaware heyra fagnaðarerindið

Parley Pratt, Oliver Cowdery og fleiri trúboðar heimsækja heimili indíána í Delaware.

Stuttu eftir að Parley Pratt skírðist, kallaði Drottinn hann til að fara í trúboð með Oliver Cowdery og öðrum. Hann vildi að þeir prédikuðu fagnaðarerindið fyrir frumbyggjum Ameríku. Trúboðarnir ferðuðust í margar vikur í gegnum djúpan snjó. Að lokum hittu þeir Kikthawenund, höfðingja Delaware indíána.

Kenning og sáttmálar 28:14; 30:5–6; 32; Heilagir, 1:98, 115

Oliver og Parley miðla boðskap Mormónsbókar.

Höfðinginn var vingjarnlegur við trúboðana. Hann bauð vinum sínum að hlýða á boðskap þeirra. Oliver sagði að hann og Parley hefðu ferðast langt að til að færa þeim Mormónsbók. Bókin segir frá fólki sem bjó í Ameríku fyrir löngu síðan. Guð vildi að þeir miðluðu bókinni svo allir gætu vitað um Jesú Krist.

Heilagir, 1:115–16.

Oliver afhendir Kikthawenund eintak af Mormónsbók.

Oliver lét Kikthawenund í té eintak af Mormónsbók. Hann var þakklátur fyrir að Oliver og vinir hans hefðu komið þetta langa leið til að miðla henni með fólkinu hans. Hann sagði Oliver og Parley að hann vildi að þeir kæmu aftur til að lesa fyrir þau og kenna þeim meira um Mormónsbók.

Heilagir, 1:116–17.