„Vitni sjá töflur Mormónsbókar,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)
„Vitni sjá töflur Mormónsbókar,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum
Mars – september 1829
Vitni sjá töflur Mormónsbókar
Gefa heiminum vitnisburð
Joseph, Emma og Oliver héldu áfram að þýða gulltöflurnar á heimili Smith-fjölskyldunnar í Pennsylvaníu. En fólk í bænum þeirra vildi stöðva þau. Oliver átti vin að nafni David Whitmer sem bjó í New York. Oliver spurði David hvort þau gætu flutt inn til Whitmer-fjölskyldunnar til að ljúka þýðingunum.
Heilagir, 1:68
David og fjölskylda samþykktu það. Þau buðu Joseph, Emmu og Oliver velkomin á heimili sitt. Nú gætu þau unnið að þýðingunni í friði. Það bjó margt fólk á Whitmer-heimilinu. Það þýddi að það var mikið verk fyrir höndum, sérstaklega fyrir Mary, móður Davids.
Heilagir, 1:68–70.
Dag einn, er Mary var við vinnu, heimsótti engillinn Moróní hana. Hann sagðist vita að öll viðbótarvinnan væri að gera hana þreytta. Hann vildi styrkja trú hennar. Hann opnaði poka og dró út gulltöflurnar. Hann fletti blaðsíðunum og sýndi Mary það sem skrifað var. Hann lofaði Mary að hún myndi hljóta blessun.
Heilagir, 1:70–71.
Sumir trúðu ekki að töflurnar væru raunverulegar. Joseph hafði hlýtt boði Drottins um að sýna engum töflurnar. Drottinn sagði að hann myndi leyfa þremur vitnum til viðbótar að sjá töflurnar. David Whitmer, Martin Harris og Oliver Cowdery spurðu hvort þeir gætu verið vitnin. Drottinn sagði að þeir gætu það.
Kenning og sáttmálar 5:11–12; 17; Heilagir, 1:73
Joseph, Martin, Oliver og David fóru inn í skóginn. Þeir krupu og skiptust á að spyrja Guð hvort þeir gætu séð töflurnar, en ekkert gerðist.
Heilagir, 1:73
Martin Harris fannst hann vera ástæða þess að bænum þeirra var ekki svarað. Martin fór og hinir héldu áfram að biðja.
Heilagir, 1:73
Þá birtist engill í björtu ljósi. Hann sýndi Oliver og David gulltöflurnar og það sem ritað var á þær. Þeir heyrðu rödd Guðs segja að Joseph hefði þýtt töflurnar með krafti Guðs og að þýðingin væri rétt. Guð sagði þeim einnig að segja öllum frá því sem þeir hefðu séð og heyrt.
„Vitnisburður þriggja vitna“; Heilagir, 1:73–74
Joseph fór að finna Martin. Hann var enn á bæn. Joseph baðst fyrir með honum. Engillinn birtist síðan og sýndi Martin töflurnar, alveg eins og hann hafði gert við Oliver og David.
Heilagir, 1:74
Næst fór Joseph til að finna foreldra sína, sem voru í heimsókn hjá Mary Whitmer. Hann sagði þeim hve glaður hann væri að aðrir hefðu séð töflurnar. Nú gátu vitnin sagt fólkinu að Joseph væri að segja satt. Martin sagði öllum hversu ánægður hann væri að Guð leyfði honum að vera eitt af vitnunum.
Heilagir, 1:74–75.
Nokkrum dögum síðar sagði Drottinn Joseph að sýna átta öðrum gulltöflurnar – föður sínum, tveimur bræðrum, fjórum bræðrum Davids og mági Davids. Þeir fengu að halda á töflunum og fletta þeim. Þeir vissu að töflurnar væru raunverulegar.
„Vitnisburður átta vitna“; Heilagir, 1:75
Þýðingu Mormónsbókar var nú lokið. Joseph afhenti englinum Moróní gulltöflurnar. Nú var kominn tími til að prenta eintök af bókinni svo allir gætu lesið hana og lært meira um Jesú Krist.
Heilagir, 1:75–76.
Það kostaði mikla peninga að prenta Mormónsbók. Martin Harris gaf hluta af býli sínu til að greiða fyrir það. Hann gerði það vegna þess að hann vissi að Mormónsbók væri sönn. Hvert eintak af bókinni hefur að geyma vitnisburð Martins og hinna vitnanna fyrir alla að lesa. Vitnin neituðu aldrei vitnisburði sínum.
Kenning og sáttmálar 19:26–27, 34–35; Heilagir, 1:76–78