Sögur úr ritningunum
Lucy Morley og fjölskylda hennar


„Lucy Morley og fjölskylda hennar,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Lucy Morley og fjölskylda hennar,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Nóvember 1830

Lucy Morley og fjölskylda hennar

Margir trúa og láta skírast

Lucy Morley býður þremur trúboðum í hús Abigail Daniels.

Dag einn var hin 15 ára gamla Lucy Morley að hjálpa nágranna sínum, Abigail Daniels, að vefa klæði. Meðan þær unnu, heyrðu þær að bankað var á dyrnar. Það voru þrír trúboðar. Abigail bauð þeim inn. Þeir sögðu að Jesús Kristur hefði sent þá til að miðla boðskap.

Heilagir, 1:102–3.

Trúboðarnir kenna Lucy og Abigail um Mormónsbók.

Mennirnir sögðu Abigail og Lucy að Jesús hefði kallað Joseph Smith til að vera spámaður. Þeir sögðu þeim líka frá Mormónsbók.

Heilagir, 1:103

Abigail vísar trúboðunum út úr húsi sínu.

Lucy til undrunar varð Abigail reið. Hún vísaði trúboðunum út úr húsi sínu.

Heilagir, 1:103

Lucy biður trúboðana að heimsækja fjölskyldu sína.

Lucy vissi að þessir trúboðar væru þjónar Guðs. Hún sagði þeim að heimsækja fjölskyldu sína neðar í götunni. „Faðir minn býr einn og hálfan kílómetra héðan,“ sagði hún. „Farið þangað og þið fáið mat og annast verður um ykkur.“

Heilagir, 1:103–4.

Trúboðarnir borða máltíð með Lucy og fjölskyldu hennar.

Lucy hafði rétt fyrir sér. Trúboðarnir borðuðu góða máltíð á býli Morley-fjölskyldunnar. Foreldrar Lucy voru vinir Sidneys Rigdon. Þau trúðu því að Jesús vildi að þau deildu öllu sem þau áttu með öðrum. Þau buðu trúboðunum að kenna sér og vinum sínum.

Heilagir, 1:104

Lucy, Abigail og fleiri eru skírð.

Um miðnætti þetta kvöld létu 17 manns skírast. Á næstu dögum komu 50 manns í viðbót á Morley-býlið til að hlýða á trúboðana og báðu um að fá að skírast. Jafnvel vinkona Lucy, Abigail Daniels, skipti um skoðun varðandi trúboðana. Hún og eiginmaður hennar ákváðu að ganga í kirkjuna.

Heilagir, 1:105; Kenning og sáttmálar 20:25, 37