Sögur úr ritningunum
Hin dýrmæta perla


„Hin dýrmæta perla,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Hin dýrmæta perla,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Júlí 1835–mars 1842

Hin dýrmæta perla

Fleiri ritningar frá Drottni

Joseph Smith horfir yfir egypska bókrollu.

Dag einn kom maður til Kirtland með múmíur frá Egyptalandi. Með múmíunum voru nokkrar bókrollur eða mjög gamlar pappírsrúllur. Á bókrollurnar var ritað egypskt letur. Maðurinn sýndi þær spámanninum Joseph Smith. Joseph hafði mikinn áhuga á handritinu.

Heilagir, 1:219–20

Joseph sýnir Emmu Smith bókrolluna.

Nokkrir vinir hjálpuðu Joseph að kaupa múmíurnar og bókrollurnar. Er Joseph lærði ritmálið, opinberaði Drottinn honum forn rit frá spámanninum Abraham í Biblíunni. Með hjálp vina eins og Olivers Cowdery, ritaði Joseph það sem Drottinn kenndi honum um kenningar Abrahams.

Heilagir, 1:220

Joseph hlaut sýn um Abraham og himneskan föður.

Abraham hafði í sýn séð líf okkar með himneskum föður áður en við fæddumst. Hann sá að Jesús var útvalinn til að verða frelsari okkar. Abraham lærði einnig um sköpun heimsins. Hinir heilögu voru spenntir yfir að fá þessar kenningar frá Abraham. Þeir glöddust yfir því að Drottinn vildi kenna þeim meira.

Abraham 2:6–11; 3–5; Heilagir, 1:220

Joseph hlýtur innblástur frá sögunum um Móse og Abraham.

Ritverk Abrahams varð hluti af ritningarbók sem nefnd var Hin dýrmæta perla. Í þeirri bók er einnig ritverk frá Móse, öðrum spámanni í Biblíunni. Hún kennir sannleika sem vantar í Biblíuna. Drottinn vildi að fólk þekkti þennan sannleika, svo hann miðlaði honum Joseph Smith.

HDP Móse 1–8; Abraham 1–5

Ungur drengur og telpa lesa í Hinni dýrmætu perlu.

Hin dýrmæta perla hefur líka að geyma vitnisburð Josephs Smith og Trúaratriðin þrettán. Joseph Smith skrifaði þetta til að segja heiminum frá því hverju Síðari daga heilagir trúa. Hin dýrmæta perla er lítil bók, líkt og lítil perla, en afar dýrmæt.

Joseph Smith – Saga; Trúaratriðin 1