„Líknarfélagið,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)
„Líknarfélagið,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum
Mars 1842
Líknarfélagið
Konurnar í Nauvoo þjóna Drottni
Margaret Cook bjó í Nauvoo. Hún vann fyrir Söruh Kimball og hjálpaði henni við saumaskapinn. Þegar hún vann, höfðu þær ánægju af því að ræða um nýja musterið sem verið var að byggja í Nauvoo. Þær hlökkuðu til musterisins.
Heilagir, 1:447
Dag einn tók Margaret eftir því að margir karlanna sem byggðu musterið voru í gömlum og slitnum fatnaði. Hún velti fyrir sér hvort hún og Sarah gætu unnið saman að því að sauma nýjar skyrtur fyrir karlmennina. Söruh fannst hugmyndin góð. Hún og Margaret ræddu við aðrar konur um að stofna hóp til að hjálpa vinnumönnunum.
Heilagir, 1:447–48
Spámaðurinn Joseph sagði að Drottinn væri ánægður með hugmynd þeirra og hefði nokkuð enn betra fyrir þær. Joseph bauð konunum að hitta sig 17. mars 1842. Hann notaði vald prestdæmisins til að skipuleggja konur kirkjunnar. Þær ákváðu að kalla hóp sinn Líknarkvenfélag Nauvoo.
Heilagir, 1:448, 450–51
Joseph bað Líknarfélagið að hjálpa fólki að búa sig undir blessanir musterisins og eilífs lífs. Það ætti að vera fordæmi um að fylgja Jesú.
Heilagir, 1:451
Joseph sagði líka að Líknarfélagið ætti að finna fátækt fólk og hjálpa því. Jafnvel þær konur sem fátækar voru vildu hjálpa nauðstöddum.
Heilagir, 1:449
Líknarfélagið var stofnað. Emma Smith var kölluð sem forseti þess. Hún kallaði tvo ráðgjafa, Söruh Cleveland og Ann Whitney. Hún kallaði líka ritara, Elizu R. Snow.
Heilagir, 1:450
Drottinn hjálpaði Emmu að framfylgja köllun hennar. Emma kenndi konunum að þær gætu gert mikla hluti í þjónustu Drottins. Hún vildi að hver og ein þeirra leitaði leiða til að gera gott. Hún sagði þeim að allra mikilvægast væri að elska aðra eins og Jesús gerði. Margar konur í Nauvoo gengu í Líknarfélagið.
Kenning og sáttmálar 25:3, 7; Heilagir, 1:451
Þær hjálpuðu fólki að búa sig undir blessanir musterisins og hjálpuðu mörgum nauðstöddum fjölskyldum í Nauvoo. Frá þeim tíma hafa konur um allan heim gengið í Líknarfélagið. Þær halda áfram að þjóna fólki og hjálpa því að hljóta blessanir musterisins.
Heilagir, 1:451