2025
Líkami ykkar er gjöf!
Maí 2025


„Líkami ykkar er gjöf!“ Barnavinur, maí 2025, 38–39.

Líkami ykkar er gjöf!

Brosandi stálpaður drengur og brosandi munnur

Líkamar eru mismunandi að stærð, lögun, getu og litum. Hver einasti líkami er dásamleg gjöf frá Guði og mikilvægur hluti af áætlun hans!

Allir líkamar eiga skilið virðingu. Talið vingjarnlega um eigin líkama og annarra. Fólk gæti sagt óvinsamlega hluti um ykkur, en þið þurfið ekki að trúa því eða einblína á orð þess.

Lóð, epli og klukka

Líkami ykkar er heimili anda ykkar. Það sem þið setjið ofan í líkama ykkar og fyllið heila ykkar af skiptir máli! Við getum annast líkama okkar með því að borða hollan mat, hreyfa okkur og fá nægan svefn.

Útlitslínur af gegnsæjum líkama

Við getum annast anda okkar með því að hlusta á heilagan anda, biðja og velja rétt.

Stálpaður drengur heldur á röntgenmynd yfir búk sínum svo þið getið séð beinagrind hans

Flestir hafa meira en 200 bein. Beinin styðja og vernda líkama ykkar. Vöðvarnir hjálpa við hreyfingu, gang og hlaup.

Mannshjartað

Lokurnar í hjartanu opnast og lokast oftar en hundrað þúsund sinnum á dag. Það hjálpar við að dæla blóði um allan líkama ykkar.

Mannsheilinn

Heilinn leggur hart að sér við að skilja allt sem þið sjáið, heyrið og skynjið. Hann er öflugri og hraðvirkari en nokkur tölva.

Gleraugu

Þegar þið eldist mun líkami ykkar vaxa. Himneskur faðir hannaði líkama ykkar til að breytast stöðugt allt ykkar líf!

Brosandi stálpaður drengur með handlegg sinn um axlir annars grettins drengs

Það sem þið gerið við líkama ykkar er miklu mikilvægara en hvernig hann lítur út. Notið þið hann til að koma vel fram við aðra og sjálf ykkur og fylgja Jesú Kristi?

Berið ekki líkama ykkar saman við líkama annarra. Hafið hugfast að líkami ykkar er gjöf frá himneskum föður!

PDF-síða

Myndskreyting: Jeff Harvey