2025
Fylgja Jesú í Malasíu
Maí 2025


„Fylgja Jesú í Malasíu,“ Barnavinur, maí 2025, 14–15.

Fylgja Jesú í Malasíu

Kynnist Luke

Drengur á hlaupahjóli

Luke fylgir Jesú Kristi með því að biðja og hughreysta aðra. Hann hefur unun af því að biðja með fjölskyldu sinni. Eitt sinn átti hann erfitt með kínverska stafsetningarprófið sitt. Þegar hann æfði sig og baðst fyrir um hjálp, tókst honum að ljúka því.

Drengur að vökva plöntur

Hann nýtur þess líka að fara í Barnafélagið og læra um það sem Jesús Kristur kenndi. Hann segir: „Það gerir mig mjög hamingjusaman að fylgja Jesú.“ Honum finnst gaman að þjóna mömmu sinni með því að hjálpa við húsverkin og með því að annast yngri bróður sinn þegar þeir leika úti. Hann segir: „Þegar ég hjálpa öðrum, hlýnar mér um hjartarætur.“

Drengur á bæn

Um Luke

Drengur með foreldrum og tveimur yngri systkinum

Aldur: 7 ára

Frá: Kuala Lumpur, Malasíu

Tungumál: Enska, kínverska og malajiska

Markmið: 1) Afla sér menntunar. 2) Vera með fjölskyldu sinni að eilífu.

Áhugamál: Kenna og hjálpa öðrum, hjóla á hlaupahjólum og lesa

Fjölskylda: Mamma, pabbi, einn yngri bróðir og ein yngri systir

Uppáhaldið hans

Drengur les ritningarnar með pabba sínum

Ritningarsaga: Þegar Jesús fæddist í fjárhúsi (sjá Lúkas 2:7)

Ávöxtur og grænmeti: Mandarínur og gulrætur

Matur: Nasi lemak (kókosmjólkur hrísgrjón)

Frídagur: Jólin

Litur: Rauður

Barnafélagssöngur: „Söngurinn við jötuna“ (Barnasöngbókin, 32)

PDF-síða