„Mary og Caroline bjarga ritningunum,“ Barnavinur, maí 2025, 26–28.
Sögur úr ritningunum
Mary og Caroline bjarga ritningunum
Mary Rollins var 12 ára þegar hún lærði fyrst um Mormónsbók. Hún fékk lánað eintak og vakti mest alla nóttina við lesturinn.
Mary var líka spennt fyrir nýrri bók sem nefnd var Boðorðabókin. Í henni yrðu margar þeirra kenninga sem Jesús Kristur hefði gefið Joseph Smith.
Sumum líkaði hins vegar ekki við kirkjuna. Dag einn brutust menn inn í bygginguna þar sem verið var að prenta Boðorðabókina. Þeir fleygðu prentvélinni út um gluggann og tvístruðu blaðsíðunum út á götuna.
Mary og yngri systir hennar, Caroline, földu sig og fylgdust með. Mary vildi bjarga síðunum áður en þær eyðilögðust. Caroline var hrædd, en þær vissu að síðurnar geymdu orð Guðs.
Systurnar hlupu út á götuna og tóku eins margar blaðsíður og þær gátu. Nokkrir menn sáu þær og hrópuðu á þær að hætta. Mary og Caroline héldu þétt í blaðsíðurnar og hlupu út á nálægan kornakur.
Tveir menn eltu þær. Mary og Caroline hentu sér niður og földu blaðsíðurnar undir líkömum sínum. Þær hlustuðu hljóðlega meðan mennirnir leituðu þeirra.
Mennirnir gáfust fljótlega upp. Mary og Caroline voru heilar á húfi! Þær höfðu bjargað síðunum! Á okkar tíma eru þessar kenningar í Kenningu og sáttmálum.