„Feta í fótspor hans,“ Barnavinur, maí 2025, 17.
Skrifað af ykkur
Feta í fótspor hans
Dag einn fór fjölskylda mín í sleðaferð með ömmu og afa. Við gengum að opnu svæði sem þakið var nokkuð djúpu nýföllnu snjólagi. Það var mjög erfitt að ganga í snjónum! Systir mín átti erfitt með að ganga í snjónum, svo afi sagði: „Fetaðu bara í fótsporin mín.“
Ég og systir mín tókum að feta í fótspor hans. Eftir smá stund langaði mig að reyna að ganga einn í smá tíma. Það var miklu erfiðara þegar ég gekk einn í snjónum!
Það var auðveldara að feta í fótspor afa, því hann hafði þegar gert það sem erfiðast var við að ganga í snjónum. Ég hef vitnisburð um að Jesús Kristur hafi þegar gert erfiðasta hlutann. Ef þið fetið í fótspor Jesú, verður líf ykkar líka auðveldara.
Myndskreyting: Abby Rummler