„Kennið mér um heilagan anda,“ Barnavinur, maí 2025, 46–47.
Helstu trúarreglur
Kennið mér um heilagan anda
Heilagur andi er andavera. Það merkir að hann hefur ekki efnislíkama. Hann hjálpar okkur að vita hvað himneskur faðir vill segja okkur.
Heilagur andi getur huggað okkur þegar við erum óttaslegin eða döpur. Hann talar til okkar með hljóðum tilfinningum og hugmyndum.
Heilagur andi veitir okkur gleði þegar við tökum góðar ákvarðanir.
Heilagur andi hjálpar okkur að finna kærleika frá himneskum föður og Jesú Kristi. Hann hjálpar okkur að vita hvað er satt.
Verkefnatími
Heilagur andi getur hjálpað ykkur að taka góðar ákvarðanir. Bendið á þær góðu ákvarðanir sem þessi börn eru að taka.
Myndskreyting: Tracy Walker