2025
Traust frammi fyrir Guði
Maí 2025


„Traust frammi fyrir Guði,“ Barnavinur, maí 2025, 02–03.

Ráðstefnuboðskapur frá spámanninum

Traust frammi fyrir Guði

Tekið úr „Fagnið yfir gjöf prestdæmislykla,“ aðalráðstefna, apríl 2025.

Þegar við gerum og höldum sáttmála getum við notið trausts heilags anda. Við getum treyst því að himneskur faðir heyri í okkur og elski okkur meira en við fáum skilið. Við getum verið viss um að hann vilji hjálpa okkur að ná mestu möguleikum okkar. Kærleikur og dyggð opna leið til að hafa traust frammi fyrir Guði!

Sannur kærleikur til allra manna er aðalsmerki friðflytjenda! Við skulum biðja til himnesks föður um að fylla hjörtu okkar kærleika.

Dyggðin gerir allt betra og gleðilegra! Ef þið hafið slæmar hugsanir, illkvittna hugsun eða dapurlega hugsun, mun dyggð hrekja slíkar hugsanir burtu.

Hugsanir okkar, orð og verk þurfa ávallt að vera dyggðug og fyllt hinni hreinu ást Jesú Krists til allra manna. Ég býð ykkur að vaxa að trausti frammi fyrir Drottni.

Lærið um það vel

Teiknið eða skrifið svör ykkar við þessum spurningum um boðskap Nelsons forseta.

  1. Hvernig getið þið sýnt öðrum elsku?

  2. Hvað gott getið þið hugsað um ef slæm, illkvittin eða dapurleg hugsun berst ykkur?

Hvaða ritningarvers notaði Nelson forseti til að kenna um kærleika og dyggð? (Vísbending: Þið getið notað ritningarnar ykkar til að fletta þeim upp!)

  1. Hebreabréfið 11:1.

  2. Kenning og sáttmálar 121:45

  3. Moróní 10:5

  4. Amos 3:7

PDF-síða

Myndskreyting: Josh Talbot