2025
Fylgið gleðiorðunum
Maí 2025


„Fylgið gleðiorðunum,“ Barnavinur, maí 2025, 44–45.

Þægilegur lestur

Fylgið gleðiorðunum

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

„Getum við farið og teiknað með krít?“ spurði Quinn mömmu.

„Endilega!“ sagði mamma. „Förum.“

Quinn og litli bróðir hans og systir hlupu út.

„Ég vil bláan!“ hrópaði Quinn.

Kade og Chloe fengu sér líka krít. Þau settust niður og byrjuðu að teikna á gangstéttina. Mamma tók upp rauða krít og tók að skrifa.

Ungur drengur litar með gangstéttarkrít

„Hvað ertu að gera?“ spurði Quinn.

„Ég er að skrifa gleðiorð fyrir skólabörnin þegar þau ganga heim í dag,“ sagði mamma.

Quinn gat séð skólann úr glugganum á framhliðinni. Honum fannst gaman að veifa til barnanna þegar þau gengu framhjá.

„Hvaða skilaboð getum við skrifað til að fá þau til að brosa?“ spurði mamma.

Ungt barn teiknar stjörnur með gangstéttarkrít

Quinn las yfir öxl mömmu. „Þú ert …“

„Frábær!“ lauk mamma.

Quinn brosti og hélt áfram að lesa. „Þú rokkar. Þú getur það!

Þá fékk Quinn hugmynd. Hann byrjaði að draga langt strik að einum skilaboðum mömmu. Hann dró strik að þeim næstu. Síðan dró hann lykkju um önnur.

Kona skrifar: „Þú ert frábær!“ með gangstéttarkrít

„Hvað ertu að gera?“ spurði mamma.

„Ég er að búa til strik fyrir börnin til að ganga eftir,“ sagði Quinn. Hann tók að hlaupa eftir strikinu. „Sjáðu? Ég er að sýna þeim hvar á að finna öll gleðiorðin.

„Mér finnst þetta frábær leið til að fá alla til að brosa,“ sagði mamma. Þetta gerði bros Quinn enn breiðara.

Ung stúlka teiknar með gangstéttarkrít við skilaboð sem segja: „Þú getur þetta!“
PDF-saga

Myndskreyting: Asya Aizenstein