2025
Kom, fylg mér – Verkefni
Maí 2025


Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, maí 2025, 22–23.

Kom, fylg mérVerkefni

Fyrir heimiliskvöld eða ritningarnám – eða bara til ánægju!

28. apríl–4. maí: Kenning og sáttmálar 41–44

Rautt ljós, grænt ljós

Drengur og stúlka að leik á grasflöt

Ritningarnar kenna hversu mikilvægt það er að halda boðorð Guðs (sjá Kenning og sáttmálar 42). Fáið einn til að vera leiðtoga og standa fyrir framan hópinn. Þegar leiðtoginn segir „grænt ljós“ geta allir haldið áfram. Þegar leiðtoginn segir „rautt ljós“ verða allir að frjósa!

5.–11. maí: Kenning og sáttmálar 45–59

Básúna engils

Barn blæs í pappírsbásúnu

Engill mun blása í básúnu þegar Jesús Kristur kemur aftur (sjá Kenning og sáttmálar 45:45). Búið til ykkar eigin pappírsbásúnu! Rúllið blaði upp í keilulagað mót og límið það saman. Þið getið líka bætt handfangi á básúnuna eða hringjum fyrir takka. Æfið ykkur síðan í að tala í básúnuna ykkar og segið hvers vegna þið elskið Jesú Krist.

12.–18. maí: Kenning og sáttmálar 46–48

Góðvildarbikar

Hönd barns tekur pappírsmiða úr glerkrukku

Guð gefur hverjum manni andlegar gjafir. Það merkir að hann blessar okkur með hæfileikum fyrir tilstilli heilags anda (sjá Kenning og sáttmálar 46:11–33). Finnið tóma krukku eða bolla. Skrifið á blaðræmur mismunandi hæfileika eða gjafir sem einhver gæti haft. Skiptist á við að velja úr krukkunni og nefna einhvern sem þið þekkið sem hefur þá gjöf!

19.–25. maí: Kenning og sáttmálar 49–50

Fylgja veginum

Fætur barns ganga á pappírsferningum

Fagnaðarerindi Jesú Krists er oft kallað hinn ævarandi sáttmáli (sjá Kenning og sáttmálar 49:9, 12–14). Nelson forseti hefur einnig nefnt það sáttmálsveginn. Skrifið á nokkur blöð hvernig við getum fylgt Jesú Kristi. Búið til veg með blöðunum og skiptist á að ganga á honum.

PDF-síða

Ljósmyndir: Christina Smith