„Trúarorðin mín,“ Barnavinur, maí 2025, 10.
Trúarorðin mín
Gætið að þessum orðum og orðtökum í þessu tölublaði Barnavinar!
boðorð
Himneskur faðir biður okkur að halda boðorð af því að hann elskar okkur. Boðorð eru leiðbeiningar sem hann gefur okkur svo við getum verið hamingjusöm og snúið aftur til hans einhvern daginn. Við hljótum blessanir þegar við fylgjum boðorðum hans.
Andlegar gjafir
Himneskur faðir gefur hverju okkar andlegar gjafir með heilögum anda til að blessa aðra. Ekki hafa allir sömu gjafir, en allir hafa andlega gjöf frá Guði. Þið getið lesið um þetta í Kenningu og sáttmálum 46:11–26.
Vitnisburður
Vitnisburður er það sem þið trúið eða vitið að er sannleikur um himneskan föður, Jesú Krist og fagnaðarerindi þeirra.
Eilíft líf
Þökk sé friðþægingu og upprisu Jesú Krists þá getum við öðlast eilíft líf, sem þýðir að við munum lifa að eilífu hjá himneskum föður, Jesú og fjölskyldum okkar.
Myndskreyting: Madison Baker