2025
Halló frá Malasíu!
Maí 2025


„Halló frá Malasíu!“ Barnavinur, maí 2025, 12–13.

Halló frá Malasíu!

Lærið um börn himnesks föður víða um heim.

Malasía er land í Suðaustur-Asíu. Hið minnsta 33 milljón manns búa þar! Meira en 130 tungumál eru töluð þar, þar á meðal malajíska og enska.

Stærsti umferðarhringur heims

Eitt hringtorg í Putrajaya, Malasíu, er 3,4 km breitt. Þetta er stærsta hringtorg í heimi!

Forn regnskógur

Taman Negara er einn elsti regnskógur í heimi. Hann er hið minnsta 130 milljón ára gamall!

Tveir turnar

Petronas-turnarnir eru tveir skýjakljúfar sem eru 88 hæðir. Hálfa leið upp er loftbrú til að ganga á milli bygginganna.

Upprunaleg dýr

Það eru mörg einstök dýr í Malasíu! Sum dýr eru sólbirnir, órangútanar og tapírar.

Risastór hellir

Sarawak-hvolfið í Malasíu er svo stórt að þið gætuð komið átta júmbóþotum þar fyrir í röð! Hellirinn er um 700 metra langur og 300 metra breiður.

PDF-síða

Myndskreyting: Josh Talbot