„Ráðstefnupunktar,“ Barnavinur, maí 2025, 4–5.
Ráðstefnupunktar
Hjálp frá himnum
Oaks forseti ræddi um þá hluti sem himneskur faðir gefur okkur til að hjálpa okkur að velja hið rétta. Von okkar er frelsari okkar, Jesús Kristur. Sökum hans, getum við hlotið fyrirgefningu og lifað aftur eftir að við deyjum. Himneskur faðir gefur okkur líka boðorð, helgiathafnir og sáttmála og heilagan anda okkur til hjálpar og leiðsagnar.
Teiknið eina hjálparleiða himnesks föður!
Í nálægð frelsarans
Eyring forseti sagði að þegar hann var ungur hefði sakramentissamkoma verið haldin að kvöldi til. Eitt dimmt og kalt kvöld fann hann birtu og hlýju í kapellunni er hann meðtók sakramentið. Þegar þau sungu orðin: „Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,“ fann hann kærleika frelsarans og nálægð hans í gegnum heilagan anda.
Teiknið eina leið til að komast nær Jesú Kristi.
Trúa, tilheyra og verða
Systir Wright sagði frá því hvernig við getum orðið ævilangir fylgjendur Jesú Krists. Við getum trúað á hann með því að læra um hann og skynjað heilagan anda. Við getum tilheyrt Jesú Kristi og kirkju hans með því að gera og halda sáttmála. Við getum líka orðið lík honum með því að fylgja fordæmi hans.
Sérstök gjöf
Öldungur Kearon ræddi um þá hefð að gefa gjafir um allan heim. Við gefum og þiggjum gjafir. Jafnvel mörgæsir gefa hverri annarri glansandi smásteina sem gjafir! Ein mikilvæg gjöf himnesks föður er að vita að við séum vissulega elskaðar dætur hans og dýrmætir synir. Þegar við sannlega hljótum þessa gjöf, getum við vitað hver við erum og hve heitt við erum elskuð.
Stjörnubjartur himinn
Öldungur Tai og fjölskylda hans tjölduðu eitt sinn undir stjörnubjörtum himni. Börnin hans spurðu hvers vegna þau sæju ekki stjörnur heima. Hann útskýrði að mengun gerði það erfitt að sjá stjörnurnar. Truflanir og freistingar geta skyggt á andlega sjón okkar. Með trú getum við vitað að himneskur faðir og Jesús Kristur eru ætíð til staðar.
Hann lifir málverk eftir Simon Dewey, myndskreytt af Josh Talbot