2025
Musterisspjöld
Maí 2025


„Musterisspjöld,“ Barnavinur, maí 2025, 16.

Musterisspjöld

Tokýó-musterið, Japan

  • Það var vígt árið 1980 og var fyrsta musterið í Asíu!

  • Hið innra í musterinu eru hefðbundin japönsk mynstur í vefnaði og gleri.

  • Árið 1949 spáði postuli að musteri yrðu byggð í Japan. Nú hafa Japanir fjögur!

Phnom Penh-musterið, Kambódíu

  • Þetta verður fyrsta musterið í Kambódíu!

  • Það eru fleiri en 16.000 kirkjumeðlimir í Kambódíu.

  • Í fyrstu heimsókn Nelsons forseta til Kambódíu, sýndi hann myndir af því hvernig þetta musteri myndi líta út.

Kaupmannahafnar-musterið, Danmörku

  • Það var fyrst byggt sem kapella, síðan breytt í musteri 73 árum síðar.

  • Musterið er með upprunalegu útidyrahurð kapellunnar og er byggt úr rauðum múrsteini.

  • Það er turn við hlið musterisins með englinum Moróní ofan á.

PDF af musterisspjöldum

Myndskreyting: Rachel Ericson