2025
Að heyra í heilögum anda
Mars 2025


„Að heyra í heilögum anda,“ Barnavinur, mars 2025, 40–41.

Að heyra í heilögum anda

„Gettu hvað ég lærði í Barnafélaginu,“ sagði Chim.

Sönn saga frá Filippseyjum.

Mynd af útvarpi

Chim opnaði syfjuð augu sín. Það var loksins komin helgi!

„Tími til að vakna, annars verðum við sein,“ kallaði mamma.

Chim vildi að hann gæti sofið lengur, en í dag var markaðsdagur. Hann þurfti að hjálpa mömmu að kaupa mat fyrir vikuna. Hann fór á fætur og át morgunmat í skyndi.

Mamma gerði mikið fyrir Chim og bræður hans tvo. Hún var afar upptekin við vinnu og hafði ekki mikinn tíma til að vera heima. Chim og bræður hans unnu saman og sáu um flest húsverkin. Chim var glaður að geta hjálpað.

Þegar Chim og mamma komu heim af markaðnum þurfti mamma að fara í vinnuna. Á meðan hún var í burtu, gerðu Chim og bræður hans sig klára fyrir sunnudaginn. Chim lagði fram skóna, buxurnar og skyrtuna sem hann myndi klæðast í kirkju á morgun. Eldri bróðir hans, Robin, hjálpaði honum að strauja skyrtuna sína. Síðan útbjuggu þeir kvöldmatinn.

Chim var að þrífa eldhúsið þegar mamma kom heim. Hún virtist virkilega þreytt.

„Gjörðu svo vel, mamma.“ Chim rétti henni skál af heitum mat til að borða.

Mamma brosti. „Takk fyrir hjálpina í dag. Þetta lítur út fyrir að vera ljúffengt!“

Næsta morgun vaknaði Chim snemma og bjó sig undir að fara í kirkju. Hann var spenntur að sjá vini sína í Barnafélaginu og læra um Jesú Krist.

„Mamma?“ kallaði hann hljóðlega og bankaði á dyrnar hjá henni. „Kemurðu með okkur í kirkju í dag?“

„Ég get það ekki,“ sagði mamma. „Ég þarf að vinna eftir hádegi í dag.“

„Allt í lagi.“ Chim var dálítið leiður. Það hafði liðið nærri því ár frá því að mamma kom í kirkju með þeim. „Keyrðu varlega og eigðu góðan dag,“ sagði hann henni.

„Tilbúinn að fara?“ spurði litli bróðir hans, Mattew.

„Já!“ Chim fór í skóna og hljóp út um dyrnar með bræðrum sínum til að ná strætisvagninum.

Chim var glaður þegar hann gekk inn í kirkjubygginguna. Hann reyndi að hugsa um Jesú Krist meðan á sakramentinu stóð. Í Barnafélagsbekknum reyndi hann líka sérlega mikið að hlusta á kennslu systur Ortega.

„Í dag lærum við um heilagan anda,“ sagði systir Ortega. „Heilagur andi færir okkur boðskap frá himneskum föður. Svolítið eins og útvarpstæki.“

Chim leit á myndina af útvarpi sem systir Ortega hélt á lofti.

„Útvarp virkar með því að taka á móti merki og breyta því í hljóðbylgjur sem við getum heyrt,“ útskýrði hún. „Þú verður að stilla það á réttu rásina til að heyra í því. Við þurfum líka að beina hjarta okkar og huga í réttan farveg til að heyra í heilögum anda. Hvernig getum við gert það?“

Allir voru að hugsa. Chim sagði þá: „Með því að fylgja Jesú Kristi og halda boðorðin.“

Systir Ortega brosti. „Það er rétt!“

Eftir kirkjuna hjálpaði Chim við að elda kvöldmatinn aftur. Hann fann hlýju hið innra þegar hann hjálpaði. Hann vissi að með því að þjóna fjölskyldu sinni væri hann að beina hjarta sínu í réttan farveg til að skynja heilagan anda.

Teikning af mömmu og strák að elda saman

Þegar mamma kom heim faðmaði Chim hana þétt að sér. Þau báðust síðan fyrir yfir matnum og byrjuðu að borða.

„Gettu hvað ég lærði í kirkju í dag,“ sagði Chim. Honum fannst gaman að segja mömmu frá Barnafélaginu.

„Hvað?“ spurði mamma.

„Við lærðum um heilagan anda,“ sagði Chim. „Hann er eins og útvarp! Þegar við höldum boðorðin, getum við beint hjörtum okkar að réttri rás til að hlýða á hann.“

Mamma kinkaði kolli. „Það er frábært! Hvað er þá gott dæmi um að halda boðorðin?“

Chim brosti. „Hjálpa mömmu sinni!“ Hann hló. „Ég elska þig mamma!“

PDF-saga

Myndskreyting: Uran Duo