„Að fylgja Jesú á Madagaskar,“ Barnavinur, mars 2025, 10–11.
Að fylgja Jesú á Madagaskar
Kynnumst Lauren
Lauren fylgir Jesú Kristi með því að vera gott fordæmi og hlýða boðorðum Guðs. Einu sinni átti hún í erfiðleikum í félagsfræðitíma. Jafnvel þótt það væri erfitt að læra, sagði hún: „Ég bað til Guðs og hann veitti mér þekkingu til að skilja þetta.“
Það gerir hana hamingjusama að hjálpa öðrum. Hún segir: „Ég finn fyrir gleði af því að ég gat fylgt fordæmi Krists þegar hann hjálpaði öðrum.“
Um Lauren
Aldur: 9 ára
Frá: Sofia Region, Madagaskar
Tungumál: Malagasíska og franska
Markmið: Verða flugmaður því hún elskar að fljúga
Áhugamál: Spila knattspyrnu, leika leiki með fjölskyldunni og lesa bækur
Fjölskylda: Lauren, pabbi og fjórir bræður
Eftirlætið hennar
Ritningarsaga: Eftirlætis ritningargrein Lauren um Jesú Krist er sagan um fæðingu hans (sjá Matteus 1:18–25; 2; Lúkas 1:26–38; 2:1–20) því hún segir okkur að frelsari okkar hafi fæðst til að frelsa okkur.
Ávöxtur og grænmeti: Epli og grasker
Matur: Pítsa
Litur: Bleikur
Barnasöngur: „Þegar ég skírist“ (Barnasöngbókin, 53)