„Hugrekki Aniku,“ Barnavinur, mars 2025, 44–45.
Hugrekki Aniku
Sönn saga frá Bandaríkjunum.
„Ertu tilbúin?“ spurði mamma.
Anika kinkaði kolli og faðmaði bangsann sinn. Hún ætlaði með hann í kirkju. Hún vonaði að hann myndi hjálpa henni að öðlast hugrekki.
Anika hafði það hlutverk að segja frá í Barnafélaginu í dag. En hún var nýkomin til þessa lands. Hún talaði ekki mikla ensku. Hún ætlaði þess í stað að segja það á spænsku. Myndu allir skilja?
Mamma faðmaði hana að sér. „Ég veit að þú hefur áhyggjur. En mundu samt, heilagur andi mun vera með þér! Þú ert ekki einsömul.“
Þetta lét Aniku líða aðeins betur. Hún brosti til bangsans síns. Þá verðum við þrjú, hugsaði hún. Ég, bangsinn minn og heilagur andi!
Í Barnafélagsdagskránni ræddi bekkur Aniku um hvað þau höfðu lært það árið. Þau gengu að pallinum, hvert af öðru. Brátt var röðin komin að Aniku.
Hún faðmaði bangsann sinn. Hún gat verið hugrökk!
„Fjölskyldan mín lærir ritningarnar með Kom, fylg mér á hverju kvöldi,“ sagði Anika á spænsku. Hún dró djúpt andann. „Við lærðum hvernig Joseph Smith fyrirgaf þeim sem særðu hann. Ég get líka fyrirgefið öðrum. Í nafni Jesú Krists, amen.“
Anika fór aftur í sætið sitt. Kennarinn brosti til hennar og bangsans hennar. „Vel gert,“ hvíslaði hún. „Þið voruð bæði mjög hugrökk!“
Anika fann hlýjar tilfinningar í hjarta sínu. Hún hafði verið hugrökk! Hún vissi líka að heilagur andi var með henni.
Myndskreyting: Katie Rewse