2025
Hvernig andinn talar
Mars 2025


„Hvernig andinn talar,“ Barnavinur, mars 2025, 18–19.

Hvernig andinn talar

Með lotningu [fjórðapartsnóta] = 78–83

Syngið hlutana hvorn fyrir sig, síðan saman

1. Hvað finnur þú í hjarta er talar Guð þig við?

Hver veitir leiðsögn Drottni frá er biður þú um lið?

Hver lífgar helgiritin er ígrundar þau hér?

Hver umvefur og huggar er Guð fyrirgefur þér?

Hver fær þér vakið kærleik og hjartað dapurt snert?

Hver staðfestir hans nálægð best er einmana þú ert?

Við heyrum rödd Guðs ólíkt er talar hann í sál,

svo hvernig er þitt andans mál?

2. Hjartans hvatning,

hugans styrking,

blítt bros, ljúft tár,

bæn sem mitt mildar fár,

sæl sál, hlýtt hjal,

sterk trú og traust val,

fallegt, hreint mál,

friður sem fyllir sál,

friður sem fyllir sál.

PDF með nótum