„Trúarorðin mín,“ Barnavinur, mars 2025, 6.
Trúarorðin mín
Gætið að þessum orðum og orðtökum í þessu tölublaði Barnavinar!
Helgiathöfn
Helgiathöfn er heilög athöfn sem framkvæmd er með prestdæmisvaldi í nafni Jesú Krists. Nokkur dæmi eru sakramentið, skírn og staðfesting.
Fyrirgefning synda
Þegar við iðrumst og hljótum fyrirgefningu synda er okkur fyrirgefið fyrir rangar ákvarðanir sem við höfum tekið. Þetta er mögulegt vegna Jesú Krists.
Hógvær
Að vera hógvær er að vera auðmjúk, mild, viljug og hlýðin. Jesús Kristur setti fordæmi um þetta þegar hann var á jörðinni.
Heilagir
Í Nýja testamentinu voru hinir heilögu allir þeir sem kusu að láta skírast og ganga í kirkju Jesú Krists (sjá Postulasagan 9:13). Við notum sama orðið um þá sem kjósa að skírast inn í kirkju hans á okkar tíma. Heilagur er sá sem fylgir Jesú Kristi.
Myndskreyting: Madison Baker