„5 leiðir til að takast á við miklar tilfinningar,“ Barnavinur, mars 2025, 38–39.
5 leiðir til að takast á við miklar tilfinningar
Lífið getur stundum verið erfitt! Að upplifa miklar tilfinningar, eins og sorg og áhyggjur, er hluti af upplifun okkar af því að búa á jörðunni.
Í ritningunum lærum við að frelsarinn hafi jafnvel stundum verið dapur líka (sjá Jóhannes 11:32–36). Jesús Kristur þurfti að þola alls kyns sársauka. Þess vegna veit hann nákvæmlega hvernig ykkur líður. Hann veit líka nákvæmlega hvernig á að hjálpa ykkur. (Sjá Alma 7:11–12.)
Hér eru fimm atriði til hjálpar þegar ykkur líður illa.
1
Biðjið til himnesks föður um hjálp.
Þegar þið biðjið um hjálp, þá geta himneskur faðir og Jesús Kristur leiðbeint ykkur (sjá Alma 37:36–37). Þeir elska ykkur og vilja hjálpa ykkur.
2
Hafið hugfast að þið eruð elskuð.
Ritningarnar kenna að „verðmæti sálna er mikið í augum Guðs“ (Kenning og sáttmálar 18:10). Það þýðir að þið eruð elskuð og mikilvæg himneskum föður!
3
Farið út!
Himneskur faðir og Jesús Kristur sköpuðu þessa fallegu veröld fyrir okkur. Að leika úti hjálpar ykkur að verða heilsuhraust og sterk og það getur líka hjálpað ykkur að líða betur og slaka á.
4
Skrifið niður hvernig ykkur líður.
Að halda dagbók, getur hjálpað ykkur að muna eftir lexíunum sem þið lærið í lífinu. Hún getur líka hjálpað ykkur að skilja betur tilfinningar ykkar.
5
Ræðið við fullorðinn einstakling sem þið treystið.
Þegar þið ræðið við einhvern um tilfinningar ykkar, getur sá minnt ykkur á hversu sérstök þið eruð. Hann getur líka hjálpað ykkur að vita hvernig hægt er að fá þann stuðning sem þið þarfnist.
Stundum, jafnvel eftir að hafa gert þessa hluti, gætuð þið samt verið döpur. Þið gætuð þurft að tala við lækni til að hjálpa ykkur að líða betur. Þið getið líka alltaf beðið um prestdæmisblessun. Sama hvað, þið eruð ekki einsömul! Himneskur faðir og Jesús Kristur elska ykkur. Þeir vilja blessa ykkur og hjálpa ykkur.
Myndskreyting: Stephanie Mackay