„Kom, fylg mér – Verkefni,“ Barnavinur, mars 2025, 22–23.
Kom, fylg mér – Verkefni
24. febrúar – 2. mars: Kenning og sáttmálar 18
Sjálfsmynd
„Verðmæti sálna er mikið í augum Guðs“ (Kenning og sáttmálar 18:10). Það þýðir að allir eru mikilvægir himneskum föður, þar á meðal þið! Verkefni: Teiknið sjálfsmynd. Prófið að skreyta hana með mismunandi föndurvörum! Skrifið efst: „Guð elskar mig.“
3.–9. mars: Kenning og sáttmálar 19
Eyru sem hlusta
Jesús Kristur býður okkur að hlusta á sig (sjá Kenning og sáttmálar 19:23). Góðir hlustendur muna það sem þeir hafa heyrt. Sitjið í hring. Einn einstaklingur hvíslar trúarorði. Næsti einstaklingur endurtekur það og bætir við nýju. Látið þetta ganga allan hringinn þar til allir hafa bætt við orði til að muna!
10.–16. mars: Kenning og sáttmálar 20–22
Endurreisnarturn
Jesús Kristur endurreisti kirkju sína í dag eins og hún var þegar hann var á jörðu (sjá Kenning og sáttmálar 20). Merkið plastglös með blessunum sem við höfum sem hluta af kirkju Jesú Krists, eins og prestdæmið, skírn, spámenn. Staflið síðan bollum ykkar í háan turn!
17.–23. mars: Kenning og sáttmálar 23–26
Söngur hjartans
Himneskur faðir elskar þegar við syngjum frá hjarta okkar (sjá Kenning og sáttmálar 25:12). Veljið nokkra barnafélagssöngva til að syngja saman. Finnið upp á hreyfingum sem passa við textann.
24.–30. mars: Kenning og sáttmálar 27–28
Spámaðurinn segir
Spámaðurinn hlýtur opinberun frá himneskum föður og Jesú Kristi fyrir kirkjuna (sjá Kenning og sáttmálar 28:7). Prentið út eða teiknið mynd af spámanninum. Skrifið efst: „Spámaðurinn segir …“ Skrifið eða teiknið það sem spámaður okkar hefur kennt okkur.
Ljósmyndir: Christina Smith