„Prestdæmið er endurreist,“ Barnavinur, mars 2025, 26–28.
Sögur úr ritningunum
Prestdæmið er endurreist
Þið getið lesið þessa sögu í Joseph Smith – Saga 1:66–73 og Kenningu og sáttmálum 27:12.
Eftir að Joseph Smith fékk gulltöflurnar í hendur, hófst hann handa við að þýða þær. Oliver Cowdery skrifaði það sem hann sagði. Þegar þeir unnu, lærðu þeir að Jesús Kristur vildi að allir létu skírast.
Joseph og Oliver veltu fyrir sér hver hefði kraft Guðs til að skíra fólk. Þeir fóru inn í skóg til að biðjast fyrir og spyrja Guð.
Þegar þeir báðust fyrir birtist engill. Hann sagðist vera Jóhannes skírari, sem skírði Jesú Krist fyrir löngu. Hann veitti Joseph og Oliver Aronsprestdæmið svo þeir gætu skírt aðra. Prestdæmið er kraftur Guðs. Það er notað til að blessa börn Guðs.
Jóhannes skírari sagði Joseph og Oliver að skírast. Þeir fóru út í á og skírðu hvorn annan. Þegar þeir komu upp úr vatninu, voru þeir fylltir heilögum anda. Þeir voru mjög glaðir.
Síðar komu aðrir englar. Þrír postular Jesú Krists – Pétur, Jakob og Jóhannes – veittu Joseph og Oliver Melkísedeksprestdæmið. Nú gátu Joseph og Oliver veitt öðrum gjöf heilags anda.