„Friður frá musterinu,“ Barnavinur, mars 2025, 2–3.
Frá Æðsta forsætisráðinu
Friður frá musterinu
Aðlagað úr „Allt mun fara vel vegna musterissáttmála,“ aðalráðstefna, apríl 2024.
Fyrir mörgum árum ókum ég og eiginkona mín til að heimsækja Idaho Falls-musterið í Idaho. Synir okkar fjórir voru heima með barnapíu.
Þegar við bjuggum okkur undir að fara heim, sagði einn af starfsmönnum musterisins okkur að Teton-stíflan í austurhluta Idaho hefði brostið! Mikið af borginni okkar var undir vatni.
Ég og eiginkona mín krupum og báðum til himnesks föður um öryggi barna okkar og þeirra þúsunda sem urðu fyrir áhrifum flóðsins. Þessi orð komu skýrt upp í huga minn og hjarta: „Hver sem niðurstaðan verður, þá mun allt fara vel vegna musterisins.“ Við vorum síðar þakklát því að komast að því að drengirnir okkar voru öruggir.
Það er ekkert mikilvægara en að heiðra þá sáttmála sem þið munið einhvern daginn gera í musterinu. Hver sem niðurstaðan verður, þá mun allt fara vel vegna musterissáttmálanna.
Musterisvölundarhús
Musterið getur fært okkur frið á erfiðum tímum. Farið um völundarhúsið að efsta hluta Idaho Falls-musterinu, Idaho!
Myndskreyting: Alyssa Tallent