„Hjálp frá himnum,“ Barnavinur, mars 2025, 20–21.
Hjálp frá himnum
Aðlagað frá „Viljið þið vera hamingjusöm?“ aðalráðstefna, okt. 2023, 46–48.
Ég var kallaður til að vera biskup á erfiðum tíma í lífi mínu. Ég var ungur faðir með fjölskyldu og við höfðum átt í fjárhagserfiðleikum. Ég var uppgefinn. Þetta reyndist konunni minni líka erfitt.
Sunnudag einn meðtók ástkær eiginkona mín sakramentið. Andinn hjálpaði henni að skilja nokkuð. Mörg vandamálanna sem við tókumst á við voru leyst á einhverjum tímapunkti í köllun minni.
Drottinn þekkir þarfir okkar. Þegar hann biður okkur að þjóna, veit hann hvað kemur okkur að mestu gagni. Hann vill veita okkur blessanir. Hann mun veita okkur þessar blessanir þegar við þjónum honum dyggilega.
Viljið þið vera hamingjusöm? Haldið ykkur á sáttmálsveginum. Frelsarinn er að bjóða okkur að koma til sín. Hann ber byrðar okkar. Jesús Kristur gerir líf okkar auðveldara og hamingjusamara. Hann fyllir okkur einnig gleði.
Viðtalstími!
Spyrjið fjölskyldumeðlim hvernig himneskur faðir hefur blessað hann/hana. Hér eru nokkrar spurningar til að koma ykkur af stað:
-
Geturðu sagt mér frá því þegar himneskur faðir blessaði fjölskyldu okkar?
-
Hvernig hjálpar þú öðrum? Hvaða blessanir hefur þú séð þegar þú þjónar öðrum?
-
Af hverju fylgir þú Jesú Kristi? Hvernig hefur það stuðlað að hamingju þinni að fylgja honum?
Myndskreyting: Turine Tran