2025
Lærið um gulltöflurnar
Mars 2025


„Lærið um gulltöflurnar,“ Barnavinur, mars 2025, 24–25.

Lærið um gulltöflurnar

Fylgið tímalínunni til að sjá hvernig við hlutum Mormónsbók.

  • ~421 e.Kr

  • Spámaður Mormónsbókar, Moróní, innsiglaði gulltöflurnar. Töflurnar kenndu um Jesú Krist. Þær sögðu líka sögu fólks Morónís.

  • 1823

  • Moróní heimsótti Joseph Smith sem engill. Moróní sagði honum að gulltöflurnar væru grafnar í Kúmórahæðinni, sem er þar nálægt.

  • 1827

  • Eftir að Joseph hafði búið sig undir þetta í fjögur ár, treysti Drottinn honum til að fara með töflurnar heim.

  • 1828

  • Joseph þýddi töflurnar með því að hlusta vandlega á heilagan anda. Hann notaði líka sérstök verkfæri frá Guði. Hann notaði stein sem kallaður var sjáendasteinn og verkfæri sem kölluðust útleggjarar eða Úrím og Túmmím og grafin höfðu verið með töflunum.

  • 1829

  • Himneskur faðir hjálpaði Joseph að skilja það sem stóð á töflunum. Oliver Cowdery hjálpaði við að skrá það sem Joseph þýddi.

  • Hið minnsta tólf manns sáu gulltöflurnar. Ein þeirra var Mary Whitmer. Þið getið lesið vitnisburð annarra vitna fremst í Mormónsbók. Enginn þessara einstaklinga neitaði því nokkurn tíma sem þeir upplifðu.

  • 1830

  • Fyrsta þýdda eintak Mormónsbókar á ensku var prentað í Palmyra, New York, Bandaríkjunum.

  • Í dag

  • Mormónsbók er nú lesin um allan heim! Hún hefur verið þýdd yfir á 115 tungumál. Trúboðar miðla Mormónsbók með öllum sem þeir geta.

Tímalína með myndskreytingum af Joseph Smith og gulltöflunum

Myndskreyting: Alyssa Petersen