2025
Kexkökukraftaverkið
Mars 2025


„Kexkökukraftaverkið,“ Barnavinur, mars 2025, 30–31

Brautryðjendur í öllum löndum

Kexkökukraftaverkið

„Faðir á himnum, við höfum engan mat í kvöldmat. Viltu hjálpa okkur.“

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

Teiknuð mynd af frumkvöðlatelpu og mynd af hörðum kexkökum

Ískaldur vindurinn ýlfraði og snjór þyrlaðist umhverfis handvagninn. Jane dró þunnt teppið sitt þéttar um axlir sér. Fætur hennar voru dofnir en hún hélt göngunni áfram. Þau voru á leið til Salt Lake City, Utah.

Jane og fjölskylda hennar höfðu lært um Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Englandi. Þegar spámaðurinn bað kirkjumeðlimi að koma til Utah, safnaði fjölskylda hennar öllu því fé sem þau gátu til ferðarinnar. Þau sigldu yfir hafið. Þau ferðuðust nú með handvagna yfir slétturnar. Þau höfðu gengið í nokkra mánuði og voru að verða matarlaus.

Tárin runnu niður kinnar Jane. „Ég er svo svöng,“ sagði hún við eldri bróður sinn, Thomas. „Ég held ég geti ekki tekið eitt skref til viðbótar!“

Thomas klippti brot af lausri hráhúð af hjólinu á vagninum. „Hérna, tyggðu þetta,“ sagði hann. „Þetta verður allt í lagi.“

„Þakka þér fyrir,“ hvíslaði Jane um leið og hún nagaði harðan, leðurkenndan bitann.

Bráðlega var kominn tími til að tjalda fyrir nóttina. Nokkrir mannanna fóru til að veiða vísunda. Jane vonaði að þeir myndu finna einhverja. Maginn á henni var svo tómur. Á meðan þau biðu, hnipruðu Jane og fjölskylda hennar sig saman við lítinn eld, þreytt, svöng og köld.

„Við skulum fara með bæn,“ sagði Jane.

Fjölskyldan kraup saman og móðirin baðst fyrir. „Faðir á himnum, við höfum engan mat í kvöldmat. Viltu hjálpa okkur.“

Jane og systkini hennar sátu hljóð um stund. Þá reisti mamma hennar sig upp.

„Hvað?“ spurði Thomas.

„Ég var að muna svolítið.“ Mamma flýtti sér að handvagninum og opnaði fjölskyldukoffortið. Hún dró síðan fram lítinn málmkassa og opnaði hann. Inni honum voru tvær mjög harðar kexkökur. Þær voru afgangs úr sjóferð þeirra mörgum mánuðum áður.

Jane fann spennuna koma upp hið innra. Þau voru með mat! „Við getum skipt þeim í smærri bita til að deila,“ sagði hún.

En þegar þau reyndu var kexið of hart til að brjóta það í tvennt.

„Við skulum reyna þetta,“ sagði mamma. Hún setti kexið í járnpottinn og hellti smá vatni yfir það. Síðan setti hún lokið á og setti þungan pottinn yfir kolin.

Fjölskylda brautryðjenda safnast saman umhverfis pott á eldinum

Jane og fjölskylda hennar báðust aftur fyrir. Henni varð hugsað um söguna um Jesú Krist í ritningunum, þegar hann mettaði fimm þúsund með einungis fáeinum brauðum og fiskum. Hún vissi að himneskur faðir gæti líka hjálpað þeim.

Eftir smástund opnaði mamma pottinn hægt og rólega. Hann var barmafullur af mat! Það var nóg til að fæða alla fjölskylduna.

Jane faðmaði móður sína þétt að sér. „Þetta er kraftaverk!“

PDF-saga

Myndskreyting: Simini Blocker