„Kveðja frá Madagaskar!“ Barnavinur, mars 2025, 8–9.
Kveðja frá Madagaskar!
Madagaskar er land á austurströnd suðurhluta Afríku. Þar búa um 30 milljón manns. Opinber tungumál þeirra eru malagasíska og franska.
Umlukið vatni
Madagaskar er fjórða stærsta eyja heims.
Bergmyndanir
Í Tsingy de Bemahara þjóðgarðinum eru bergskógar úr kalksteini. Sumar myndanirnar eru 100 metra háar!
Að búa til vanillu
Madagaskar ræktar vanillu sem er seld um allan heim. Landið framleiðir um 3.000 tonn af vanillu á ári!
Apabrauðstréð [Baóbabtré]
Apabrauðstréð er þjóðartré Madagaskar og getur lifað í meira en 1.000 ár. Apabrauðstréð veitir fólki ávexti til að borða, börk til að búa til reipi úr og skjól frá sólinni.
Sérstök dýr
Það eru til margar mismunandi gerðir af lemúrum. Þeir koma allir frá Madagaskar.
Annað dýr frá þessu landi er sebú, sem er tegund nautgripa sem fólk notar til búskapar, fyrir mjólk og fyrir ferðalög.