2025
Ráðstefnuspurning Lou
September 2025


„Ráðstefnuspurning Lou,“ Barnavinur, september 2025, 4–5.

Ráðstefnuspurning Lou

„Ætti ég að fara í veisluna hjá Alice?“ skrifaði Lou.

Sönn saga frá Belgíu.

Grettin stúlka horfir á veisluboðskort

Lou varð spennt þegar hún reif upp bláa umslagið. Besta vinkona hennar, Alice, var að bjóða í afmælisveislu og henni var boðið!

Þegar Lou las boðið fékk hún sting í hjartað. Ekki enn ein veislan á sunnudegi, hugsaði hún.

Fjölskylda Lou fór ekki í veislur á sunnudögum. Þess í stað vörðu þau tíma saman, fóru í kirkju og gerðu ýmislegt annað til að minnast frelsarans.

En það var erfiðara að segja nei við þessari veislu. Hvernig gat hún misst af afmæli bestu vinkonu sinnar?

„Má ég ekki bara fara í þetta eina skipti?“ spurði Lou foreldra sína þetta kvöld. „Ég veit að sunnudagar eru mikilvægir. En ég vil ekki missa af því.“

„Þetta er erfitt val,“ sagði pabbi. „Himneskur faðir býður okkur að gera sunnudaginn að helgum degi. En það er undir þér komið hvernig þú gerir það.“

Mamma faðmaði Lou að sér. „Aðalráðstefna er um helgina. Kannski er þetta spurningin sem þú spyrð.“

Fjölskylda Lou hafði þann sið að skrifa niður spurningu sem þau höfðu fyrir ráðstefnuna. Á ráðstefnunni hlustuðu þau síðan eftir svörum.

Lou andvarpaði. „Allt í lagi.“

Stúlka krýpur við rúmið sitt og biðst fyrir; hún er með stílabók og blýant á rúminu

Þegar komið var að háttatíma skrifaði Lou spurninguna niður. Síðan fór hún með bæn. „Himneski faðir, mig langar virkilega að fara í þessa veislu og ég veit ekki hvað ég á að gera. Viltu hjálpa mér að finna svör á meðan ég horfi á aðalráðstefnu?“

Börn sitja á sófa og horfa á fartölvu á borði fyrir framan þau

Nokkrum dögum síðar hrúguðust Lou og bræður hennar upp í sófann. Það var komið að ráðstefnu! Lou teiknaði í stílabókina sína í opnunarlaginu. Þá tók fyrsti ræðumaður til máls.

Lou leit upp. Ræðumaðurinn var að tala um hvíldardaginn! Hann sagði að Guð blessaði þá sem héldu boðorð hans, jafnvel þó að blessunin kæmi ekki samstundis.

„Ég held að himneskur faðir hafi þegar svarað spurningu minni,“ sagði Lou. „Það gerðist hratt!“

Tvær stúlkur spjalla saman

Næsta skóladag hitti Lou Alice í frímínútum. „Takk fyrir að bjóða mér í veisluna þína,“ sagði Lou. Hún dró djúpt andann. „Sunnudagar eru sérstakir dagar fyrir mig og fjölskyldu mína. Þannig að ég kemst ekki.“

„Allt í lagi,“ sagði Alice. „Mér finnst leiðinlegt að þú missir af því.“

„Mér líka,“ sagði Lou. „En viltu koma með mér í trampólíngarðinn á laugardaginn? Þá getum við samt leikið okkur saman og haldið upp á afmælið þitt.“

„Það þætti mér skemmtilegt!“ Alice brosti.

Lou brosti á móti. Það var erfið ákvörðun að fara ekki í veisluna. En hún vissi að það væri rétt. Hún var líka þakklát fyrir að himneskur faðir svaraði mikilvægri spurningu hennar.

PDF-saga

Myndskreyting: Flavio Remontti