2025
Hin endurreista kirkja Jesú Krists
Janúar 2025


„Hin endurreista kirkja Jesú Krists,“ Líahóna, jan. 2025.

Notkun tímarita kirkjunnar

Hin endurreista kirkja Jesú Krists

fjölskylda fyrir utan musteri

Nám í Kom, fylg mér á þessu ári um Kenningu og sáttmála mun varpa ljósi á það hvernig Drottinn endurreisti kirkju sína og fagnaðarerindi fyrir tilstilli síðari daga spámanna. Margar greinar þessa mánaðar undirstrika blessanir endurreisnarinnar.

Læra í þessari útgáfu

Takið þátt í samansöfnuninni

Á bls. 2 segir Russell M. Nelson forseti frá því hvernig við getum safnast saman til frelsarans, safnast saman með hinum heilögu og safnast saman í þjónustu Guðs. Íhugið að setja markmið fyrir þennan mánuð um að leggja af mörkum til einhverrar þessara þriggja tegunda samansöfnunar.

Þjóna í hinni endurreistu kirkju

Öldungur Patrick Kearon í Tólfpostulasveitinni ræðir um þau tækifæri sem við höfum í hinni endurreistu kirkju Jesú Krists til að „þjóna öðrum af kærleika“ (sjá bls. 8). Er fólk í deild ykkar eða grein sem á í erfiðleikum? Þið gætuð beðið fyrir þessu fólki og beðið um innblástur til að þjóna því.

Læra efnið í yfirlýsingunni um endurreisnina

Árið 2020 gáfu Æðsta forsætisráðið og Tólfpostulasveitin út skjalið „Endurreisn fyllingar fagnaðarerindis Jesú Krists: Tvö hundruð ára afmælisyfirlýsing til heimsins“ (sjá bls. 40). Þegar þið lesið yfirlýsinguna um endurreisnina, gætuð þið íhugað þessar spurningar: Hvaða lykilatburðir eru nefndir þar og hvernig leiddi Drottinn þá atburði?