2025
Hamingja verður ekki keypt með peningum, en Kristur veitir fúslega gleði
Janúar 2025


„Hamingja verður ekki keypt með peningum, en Kristur veitir fúslega gleði,“ Líahóna, jan. 2025.

Ungt fullorðið fólk

Hamingja verður ekki keypt með peningum, en Kristur veitir fúslega gleði

Þegar peningaástríðan varð mitt fyrsta forgangsatriði, varð mér ljóst að ég var að velja það sem heimsins er fram yfir himneskan föður.

ung kona horfir í gegnum búðarglugga

Ljósmyndir af höfundi: Stephen Neilsen

Á uppvaxtarárum mínum var ég mjög metnaðarfull. Ég sá fólk á mínum aldri þegar vera að græða peninga og ná árangri á samfélagsmiðlum. Ég vildi vera eins og það.

Þegar ég var í háskólanámi og lærði að vera ein, urðu peningar forgangsverkefni mitt. Það eina sem skipti mig máli var að komast á skólastyrki, leggja fyrir og undirbúa mig fyrir framtíðarferil minn í myndskreytingum.

Jafnvel samfélagsmiðlar mínir voru fullir af skilaboðum um framleiðni, fjárfestingar og aukavinnu til að hjálpa mér að vinna mér inn aukafé. Ég hafði áhyggjur af því að ef ég notaði ekki hvert tækifæri til að fara skynsamlega með peningana mína myndi ég ekki vera fjárhagslega örugg.

Ég aðhylltist þessa menningu og hélt að hún myndi gera mig hamingjusama og farsæla. Ég réttlætti alltaf áherslu mína á peninga með því að segja sjálfri mér að dag einn, þegar ég ætti meiri peninga, gæti ég gefið meira til góðgerðarmála og orðið betri manneskja þannig.

Ég tók ekki eftir því á þeim tíma, en þegar peningaástríðan tók völdin yfir forgangsröðun minni, tók að draga úr lífsgleði minni. Ég varð sífellt afbrýðissamari, einkum út í þá sem virtust eiga meira en nóg af peningum.

Ég tók að sækjast eftir aukinni velgengni á samfélagsmiðlum, á starfsferlinum og jafnvel í því hvernig annað fólk leit á mig. Það virtist samt vera svo að því meira sem ég eltist við velgengni, því minni velgengni upplifði ég – og því fjarlægari varð ég himneskum föður.

Viðurkenna efnishyggju

Eftir að hafa liðið þannig í um það bil ár, hlustaði ég á ræðu Dallins H. Oaks forseta, fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu. Mér fannst hjarta mitt sökkva þegar ég heyrði hann lýsa nákvæmlega hvers konar manneskju ég væri að breytast í:

„Jafnvel í dag láta sumir sem játa kristna trú laðast meira að því sem heimsins er – því sem viðheldur lífi á jörðunni en veitir enga næringu fyrir eilíft líf.“

Ég hafði talið mig geta forgangsraðað bæði Guði og peningum samhliða, en orð Oaks forseta og þessi innsýn í Matteus 6:24 reyndust sönn: „Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.“

Þegar hugur minn einblíndi á veraldlega hluti, átti ég erfiðara með að skynja aðdráttarafl fagnaðarerindisins. Ég skildi ekki hvernig það myndi hjálpa mér við metnað minn að fara í kirkju og lesa ritningarnar.

Þótt menntun og öflun stöðugra tekna sé verðugt viðfangsefni, lagði ég of mikið upp úr því. Ég varð ánetjuð. Ég gerði mér grein fyrir að ég yrði vansæl þar til ég lærði að breyta hugarfari mínu.

Einbeita sér að því sem mestu skiptir

Ég bað til himnesks föður og spurði hann hvort hann gæti hjálpað mér við að einbeita mér að því sem mestu skipti. Ég byrjaði á því að lesa ritningarnar. Þegar ég var að læra vers sem ég taldi mig hafa lesið ótal sinnum áður, tóku þessar kunnuglegu sögur að fanga athygli mína. Ég skynjaði samskipti heilags anda við mig!

Ein sagan sem mér fannst eiga við um mig var um ríka, unga manninn. Jesús sagði við hann: „Ef þú vilt vera fullkominn skaltu fara, selja eigur þínar og gefa fátækum og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér“ (Matteus 19:21).

Þegar ég las þessa sögu úr ritningunum, fann ég hvatningu til að staldra við og íhuga hvernig hún ætti við um mig. Til að byrja með virtist ég ekki eiga neitt sameiginlegt með ríka unga höfðingjanum – hann átti auðæfi sín og var ekki fús til að segja skilið við þau. Ég, á hinn bóginn, var enn ekki rík og mér fannst tilraunir mínar til að verða mér úti um meiri peninga vera réttlátar.

Mér varð þó brátt ljóst að ég ætti erfitt með að gefa frá mér peningana mína, eins og ungi ríki höfðinginn. Sérstaklega í ljósi þess að ég var þegar í erfiðleikum með að sleppa takinu á eftirsókn minni í meiri peninga.

Ég vildi setja himneskan föður fremstan í lífi mínu aftur. Ég ákvað að opna dagbókina mína, skrifa hvernig mér leið og líta til baka á fyrri færslur til að skilja betur hver væri undirrót þráhyggju minnar.

Þegar ég gerði þetta, varð ég meðvitaðri um hversu röng forgangsröðun mín hafði verið. Eins og ég tók eftir í einni færslunni: „Ég hugsa stöðugt um það hvernig ég get hagnast á öllu í stað þess að hugsa um hvernig ég geti orðið betri eða hjálpað öðrum.“

Að lokum tók ég að breytast þegar ég lærði ritningarnar, hlustaði á andann og skrifaði dagbók.

Treysta Guði fremur en peningum

Það hefur verið dásamlegt að finna loforðið í Orðskviðunum 3:5–6 uppfyllast í lífi mínu:

„Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.

Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar.“

Ég leitast enn við að þroska hæfileika mína og vinna hörðum höndum að menntun minni og listaferli. Það er réttlát löngun að leita fjárhagslegs öryggis til að sjá sjálfum sér og fjölskyldunni farborða. Við þurfum samt að gæta þess að láta ekki eftirsókn okkar í velgengni og peninga verða mikilvægari öllu öðru.

Þessa dagana er mér sama hvort ég verði fræg eða þéni tonn af peningum með listiðn minni. Ég hef gert mér ljóst að það nægir mér að lifa lífi þar sem ég fæ að elska – og finna elsku frá himneskum föður og Jesú Kristi, fjölskyldu minni og list minni. Ég kemst ekki lengur auðveldlega í uppnám vegna óvæntra útgjalda eða velgengni annarra. Þess í stað helga ég mig fagnaðarerindi Jesú Krists meira, því það bjargar mér frá græðgi, samanburði og stöðugri óánægju. Þegar ég svo gleymi því, minna ritningarnar og spámennirnir mig alltaf á það sem mestu skiptir í lífinu.

Russell M. Nelson forseti kenndi:

„Þótt heimurinn staðhæfi að völd, eignir, vinsældir og nautnir holdsins skapi hamingju, þá er það ekki svo! Það er ekki mögulegt!

Sannleikurinn er sá, að það er miklu meira lýjandi að leita hamingjunnar þar sem þið getið aldrei fundið hana! Þegar þið aftur á móti gangið sjálf undir ok með Jesú Krist og vinnið hið andlega verk sem þarf til að sigrast á heiminum, hefur hann, og hann einn, máttinn til að lyfta ykkur ofar aðdráttarafli þessa heims.“

Sigrast á heiminum

Þær breytingar sem frelsarinn hefur hjálpað mér að gera á sál minni, hafa verið undursamlegar. Ég veit núna að velgengni snýst ekki um að sanna hversu ótrúleg ég er eða binda eigið virði við hversu mikla peninga ég þéna; það snýst um þakklæti fyrir að fá að upplifa jarðlífið og sjá hinar dásamlegu blessanir sem himneskur faðir hefur ávallt veitt mér. Ég veit að ef ég set hann í fyrsta sæti, mun allt annað falla í réttar skorður.

Ég hvet ykkur til að íhuga forgangsröðun ykkar í lífinu. Eruð þið að einblína á veraldarhyggju og það sem þið ekki hafið? Eða eruð þið að einblína á það sem mestu skiptir? Verið heiðarleg við ykkur sjálf. Gætið að því hvort þið þurfið að aðlaga stefnuna aftur að frelsaranum.

Þegar þið takið þessa ákvörðun, munið þið finna meiri gleði en þið hélduð að væri mögulegt.