„Var trúboðsköllun mín mistök?“ Líahóna, janúar 2025.
Frá Síðari daga heilögum
Var trúboðsköllun mín mistök?
Þegar ég var langt að heiman, hjálpaði Drottinn mér að uppgötva hvernig miðla mætti kærleika hans.
Tveimur árum eftir að ég útskrifaðist í trygginga- og fjármálastærðfræði, hlaut ég sterka hvatningu um að fara í trúboð. Ég valdi að þjóna, jafnvel þótt ég myndi hugsanlega missa ákveðnar háskólaeiningar sem þyrfti að taka hverja á eftir annarri.
Nokkru síðar, er ég las trúboðsköllun mína til Salt Lake City-trúboðsins í Utah, fannst mér sú stund óraunveruleg. Ég þekkti engan sem hafði þjónað í Salt Lake City. Ég hélt kannski að ég hefði fengið ranga trúboðsköllun. Þegar ég kom til Salt Lake City, fannst mér allt sem ég vissi hafa verið tekið í burtu. Ég var staddur á hjóli í snjónum án þess að hafa hugmynd um hvernig vera ætti trúboði. Vegna ólíkrar menningar og loftslags, fannst mér Salt Lake City eins langt í burtu frá Suður-Afríku og ég hefði getað komist.
Á fyrsta svæðinu heimsóttum ég og félagi minn meðlim að nafni Chris Ruppel til kvöldverðar. Hann spurði hvort annar okkar þekkti tónlist. Félagi minn sagði mig spila á píanó og syngja, svo ég söng fyrir fjölskylduna. Þá gerðist svolítið sérstakt. Bróðir Ruppel leit á mig og sagði: „Öldungur Vizzini, ef þú heldur áfram að syngja svona, verður þú farsæll trúboði.“ Mér fannst þetta fallegt af honum, en hugsaði ekki mikið um það.
Nokkrum mánuðum síðar hjálpaði ég, ásamt bróður Ruppel, við að skipuleggja tónlistarviðburð. Á öllum svæðum sem ég þjónaði á eftir það, notuðum við þessa sömu forskrift að viðburði. Margir tóku þátt með okkur, allt frá stikumeðlimum til þekktra tónlistarmanna og meðlima annarrar trúar. Við kenndum fólki um frelsarann með tónlist sem að öðrum kosti hefði ekki viljað taka þátt í kennslustund. Ég lærði að tónlist getur snert bæði fátæka og ríka, menntaða og ómenntaða.
Trúboðið mitt hefur kennt mér að ég get gert erfiða hluti. Þegar ég þjónaði á svæði sem var afar fjarri heimili mínu, lærði ég að allir eru börn Guðs. Ég hef séð kraftaverk í lífi fólks hinum megin í heiminum í Utah og ég hef séð þau hér í Suður-Afríku. Ég veit að ef við aðeins trúum, þá geta kraftaverk gerst í lífi okkar allra (sjá Mormón 9:15–21).